Bruninn í Skildi

3. þáttur: Þögnin

Það er gamlársdagur og grimmur raunveruleiki blasir við íbúum í Keflavíkurkauptúni. Eldurinn er slökknaður en leitað er í rústunum fórnarlömbum brunans í Skildi. Þau finnast fljótt en ekki er hægt bera kennsl á alla. Á sjúkrahúsi liggja 13 þungt haldin.

Harmi lostnir kveðja íbúar Keflavíkurhrepps hið liðna ár og heilsa hinu komandi með sorg og kvíða.

Umsjón: Dagný Maggýjardóttir

Ritstjórn: Anna Marsibil Clausen

Birt

5. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Bruninn í Skildi

Á jólatrésskemmtuninni í Skildi, 1935, létu 10 manns lífið. Þar af sjö börn.

Fleiri hafa ekki farist í bruna á Íslandi, vitað sé, síðan á Sturlungaöld. Margir hlutu alvarleg brunasár og þeirra beið löng sjúkralega. Missirinn í litlu þorpi var ólýsanlegur. Ósegjanlegur. Og þannig, sveipaður þögn. En ef sögur eru ekki sagðar falla þær í gleymsku, svo 90 árum síðar minnumst við hinna látnu og varðveitum söguna af Brunanum í Skildi.

Umsjón: Dagný Maggýjar

Ritstjórn: Anna Marsibil Clausen

Þættir

,