10:13
Flugur
Lög við ljóð Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi

Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.

Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Sjötti og síðasti þátturinn þar sem lög við ljóð Davíðs Stefánssonar eru leikin. Lögin í þessum þætti eru Þú komst í hlaðið sem Helgi Björnsson syngur, Sálin hans Jóns míns, fyrri hluti sem Ingibjörg Þorbergs syngur, Hrosshár í strengjum sem Friðbjörn G. Jónsson syngur, Vornótt sem Sigrún Hjálmtýsdóttir og Óskar Pétursson syngja, Blómið sem Kristjana Arngrímsdóttir syngur, Til hvers? og Karlinn úti á klöpinni í flutning þjóðlagahópsins Lítið eitt, Gamall sjómaður sem Bjarni Hafþór Helgason syngur, Hvítir fuglar sem Haraldur Reynisson syngur og Þráðurinn hvíti sem Þórhildur Örvarsdóttir syngur. Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 46 mín.
,