Útvarpsþing RÚV 2025

Leiðin til okkar - hvernig nálgumst við efni fjölmiðla í framtíðinni?

Framtíð efnisdreifingar – frá samkeppni til samstarfs

Gunnar Sigurjónsson, framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs Sýnar. Framþróun í efnisdreifingu er á fullri ferð og tækni- og samkeppnisumhverfið hefur tekið gríðarlegum breytingum á undanförnum árum. Í erindinu verður fjallað um hvernig Sýn sér þessa þróun til framtíðar, hvaða ógnir steðja og hvernig bregðast þurfi við þeim. Einnig verður fjallað um hvar tækifæri liggja sem felast í nýrri tækni og samstarfi.

Frumsýnt

23. okt. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Útvarpsþing RÚV 2025

Útvarpsþing RÚV 2025

Leiðin til okkar - hvernig nálgumst við efni fjölmiðla í framtíðinni?

Útvarpsþing Ríkisútvarpsins 2025 var haldið fimmtudaginn 23. október.

Viðfangsefni Útvarpsþingsins er hvernig dreifingu efnis fjölmiðla verður háttað í framtíðinni og hvernig fólk mun nálgast efni fjölmiðla.

Fyrirlesarar eru Richard Waghorn, yfirtæknistjóri írska ríkisútvarpsins, Skúli Bragi Geirdal, sviðsstjóri Netvís, Halldóra Þorsteinsdóttir, hérðasdómari og dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík, Logi Karlsson, framkvæmdastjóri tækniþróunar Símans, Gunnar Sigurjónsson, framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs Sýnar, Hrefna Lind Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar hjá RÚV.

Guðrún Sóley Gestsdóttir er kynnir og stjórnar panelumræðum.

Þættir

,