Kjötsúpa, gróðurhús og seitan
Solla Eiríks heimsækir Valgerði sem kennir okkur að búa til kjötsúpu og karamellur. Einnig hittir hún Heiðrúnu sem ræktar m.a. sætar kartöflur. Við lærum að búa til seitan.

Matreiðsluþættir þar sem Solla Eiríks heimsækir konur sem hafa áratugareynslu af matargerð. Hún kíkir í uppskriftabækur þeirra og lærir að elda rétti sem þær hafa matreitt á sinn einstaka hátt í fjölda ára. Í framhaldinu býður hún konunum heim til sín og endurgerir uppskriftirnar með aðstoð þeirra, en skiptir út dýraafurðum fyrir hráefni úr náttúrunni. Leikstjóri: Sunneva Ása Weisshappel. Framleiðsla: RVK Studios.
Uppskriftirnar má finna hér: https://www.ruv.is/frettir/tag/uppskriftabokin