Að þessu sinni er Jólastundin okkar með heldur óhefðbundnu sniði, Björgvin og Franzína mús eru stödd í ævintýraherbergi niðri á ævintýragangi, þar sitja þau fyrir framan arineld og Björgvini dettur það snjallræði í hug að lesa jólasögu fyrir krakkana heima. Hann finnur þó enga bók en Fransína segir það líka óþarfa, hún geti bara skáldað upp sögu á staðnum. Þá hefst sagan um Jólaskipið Jónatan.
Sagan fjallar um systkinin Svövu og Kjartan sem vinna þau verðlaun að fá að eyða jólunum á jólaeyju, sagan hefst á því að þau fara um borð í Jólaskipið Jónatan sem á að flytja þau til eyjunnar. Ásamt Svövu og Kjartani eru ýmsar furðuverur um borð, jólasveinninn, Hnoðri bómullardrengur, Hákon skipstjóri, Kokka kokkur, Kobbi kolkrabbi, blákonan, rykfallni píanóleikarinn, álfar og skipshjálpir.
Leikur:
Svava: Rakel Björk Björnsdóttir.
Kjartan: Jafet Máni Magnúsarson.
Hnoðri: Víðir Guðmundsson.
Hákon skipstjóri: Sveinn Ólafur Gunnarsson.
Fransína og Kokka kokkur: Anna Svava Knútsdóttir.
Kobbi kolkrabbi: Björgvin Franz Gíslason.
Bláa konan: Halla Mía Ólafsdóttir.
Píanóleikari: Daníel Geir Moritz.
Jólasveinn: Grétar G. Guðmundsson.
Álfar: Birta Abiba Hafdísardóttir, Yrsa Björt Eggertsdóttir, Edda Lovísa Björgvinsdóttir og Silja Jenný Guðmundsdóttir.
Skipshjálpir: Andri Páll Alfreðsson og Atli Geir Alfreðsson.
Stundin okkar 2009.12.25 : 13. þáttur : Jólastundin okkar