Að þessu sinni er Fransína að læðast inn með gervirottur til að stríða Björgvini en hann sér í gegnum þetta og sér að þær eru bara gervi. Fransína heldur áfram að reyna að stríða Björgvini, hún fellir allt um koll og segir hafa fundið fyrir jarðskjálfta og loks að það hafi kviknað í þá fyrst trúir Björgvin henni og kemur hlaupandi með slökkvitæki. Fransína veltist um af hlátri en Björgin er ekki sáttur og rifjar upp söguna "Úlfur, úlfur", en Fransína skilur ekki boðskap sögunnar. -