Þáttur 1 af 8
Andleg heilsa Benedikts versnar eftir að hann hefur sagt af sér og hann fylgir strangri rútínu til að takast á við það. Steinunn styður hann og tekst á sama tíma við pólitískan þrýsting.
Önnur þáttaröð þessara íslensku dramaþátta. Benedikt Ríkharðsson snýr aftur í stjórnmál eftir að hafa tekið sér leyfi frá embætti forsætisráðherra vegna geðhvarfa. Hann kemur auga á ýmis konar ranghugmyndir stjórnkerfisins um samfélagið sem honum reynist erfitt að fá breytt enda brennimerktur vegna fordóma í garð geðsjúkdóma. Aðalhlutverk: Ólafur Darri Ólafsson og Aníta Briem. Leikstjórn: Arnór Pálmi Arnarson og Katrín Björgvinsdóttir.