• 00:00:37Veltihringrás Atlantshafsins
  • 00:16:41Sæði tekið úr notkun
  • 00:20:59Högni og Apex

Kastljós

AMOC í hættu, genagallar í gjafasæði, Högni semur fyrir Apex

Auknar líkur eru á veltihringrás Atlantshafsins, eða AMOC, veikist af völdum loftslagsbreytinga og rofni jafnvel í framhaldinu. Slíkt gæti þýtt nýtt kuldaskeið í Bretlandi, Skandinavíu og á Íslandi, með afdrifaríkum afleiðungum. Halldór Björnsson, fagstjóri veðurs og loftstlags hjá Veðurstofu Íslands, og Hrönn Egilsdóttir, sviðsstjóri umhverfissviðs hjá Hafrannsóknarstofnun, fóru yfir stöðuna.

Frá árinu 2013 hefur sæði úr 70 dönskum sæðisgjöfum verið tekið úr umferð hér á landi vegna genagalla. Við fjöllum um málið.

Kastljós hittir líka Högna Egilsson tónskáld sem semur tónlistina við nýjustu kvikmynd Baltasars Kormáks, Apex, sem er framleidd af Netflix

Dagskrárliðurinn er textaður.

Birt

27. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.

Þættir

,