• 00:00:39Vaxtahækkanir Seðlabankans
  • 00:14:44Flæðisvandi á Landspítalanum
  • 00:21:33Torgið

Kastljós

Kjarasamningar í hættu, yfirfullur Landspítali, ESB í Torginu

Seðlabankinn hækkaði stýrivexti í gær um 0,25 prósentustig og eru þeir því orðnir 7,5 prósent. Verðbólga mælist 5,2 prósent, sem þýðir forsendur kjarasamninga í haust eru í hættu. Fjármálaráðherra kallar eftir samstilltu átaki ríkis, vinnuveitenda og verkalýðshreyfingar - en varar við þær yrðu ekki sársaukalausar. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR og Þorsteinn Víglundsson, formaður Samtaka iðnaðarins. eru gestir Kastljóss.

Rauði liturinn er allsráðandi á legudeildum Landspítalans - sem þýðir þær eru yfirfullar. Hjúkrunarfræðingur segir eitt sinn hefði mátt líkja ástandinu við snjóhengju - en hún fallin. Við fylgjumst með starfsfólki Landspítalans reyna finna rúm fyrir sjúklinga.

Umræðu um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður ESB verður ekki haldið áfram á Alþingi fyrr en eftir páska. Þá kemur í ljós hvort atkvæðagreiðslan verði 29. ágúst eins og stefnt er að. Fram því búast við líflegum umræðum og ljóst er almenningur hefur fjölmargar spurningar sem tengjast bæði atkvæðagreiðslunni og mögulegri aðild ESB. Torgið næsta þriðjudag verður helgað þeim spurningum

Dagskrárliðurinn er textaður.

Birt

19. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.

Þættir

,