Markmið 17 - Samvinna um markmiðin
Við kynnum okkur markmið númer 17 - samvinnu um markmiðin. Þetta er mjög mikilvægt markmið því ekkert okkar bjargar heiminum einsamalt, það gengur alla vega töluvert hraðar ef við…
Markmið um aðgerðir í loftslagsmálum eru mjög mikilvæg og í þættinum förum við yfir það helsta sem hægt er að gera og hvað við getum gert. Stundum finnst okkur vandamálin svo stór að okkur finnst við ekki geta gert neitt til að hjálpa en sjáiði t.d. Gretu Thunberg sem hefur heldur betur látið í sér heyra og lagt sitt af mörkum varðandi loftslagsmálin.

Dídí og Aron fjalla um Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Í hverjum þætti er eitt markmið tekið fyrir. Við getum öll lagt okkar af mörkum svo hægt sé að ná heimsmarkmiðunum fyrir árið 2030 og í kjölfarið gera heiminn að betri stað. Umsjón: Aron Gauti Kristinsson og Steinunn Kristín Valtýsdóttir. Þættirnir eru unnir í samstarfi við forsætisráðuneytið og utanríkisráðuneytið.