Á tali hjá Hemma Gunn 1994-1995

Á tali hjá Hemma Gunn 23. nóvember 1994

Hemmi Gunn kynnir fjölbreyttan skemmtiþátt með tónlist, viðtölum og uppákomum. Siggi Björns flytur lag, Svanhildur Jakobsdóttir syngur með börnum úr leikskólanum Selbrekku og listamenn frá Kínverska ríkisfjölleikahúsinu sýna glæsileg fimleikaatriði. Aðalgestur þáttarins er Pálmi Gestsson, sem ræðir við Hemma og sýnd eru brot úr leikferli hans. Einnig koma fram Ellý Vilhjálms og hljómsveitin SS Sól, og falin myndavél er á sínum stað áður en Hemmi kveður í lok þáttar.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 23. nóvember 1994.

Birt

2. des. 2020

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Á tali hjá Hemma Gunn 1994-1995

Tekið er á móti góðum gestum í sjónvarpssal, slegið á létta strengi, stiginn dans og sungið. Hljómsveit: Ásgeir Óskarsson, Finnbogi Kjartansson, Magnús Kjartansson og Vilhjálmur Guðjónsson. Dagskrárgerð: Egill Eðvarðsson. Umsjónarmaður: Hermann Gunnarsson.

Þættir

,