Á tali hjá Hemma Gunn 1994-1995

Á tali hjá Hemma Gunn 9. nóvember 1994

Hemmi Gunn kemur inn á mótorhjóli í upphafi þáttar og kynnir fjölbreytta skemmtidagskrá. Spoon með Emilíönu Torrini flytja lag, börn úr leikskólanum Ásborg taka þátt í spjalli og brot er sýnt úr Snædrottningunni frá Þjóðleikhúsinu. Aðalgestur kvöldsins er Jóhanna Sigurðardóttir, sem ræðir við Hemma, og Tjarnarkvartettinn flytur tvö lög. Nuno Miguel Carrilha syngur Do You Love Me og í lok þáttar flytur Árni Tryggvason Síldarvalsinn áður en Hemmi kveður áhorfendur.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 9. nóvember 1994.

Birt

25. nóv. 2020

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Á tali hjá Hemma Gunn 1994-1995

Tekið er á móti góðum gestum í sjónvarpssal, slegið á létta strengi, stiginn dans og sungið. Hljómsveit: Ásgeir Óskarsson, Finnbogi Kjartansson, Magnús Kjartansson og Vilhjálmur Guðjónsson. Dagskrárgerð: Egill Eðvarðsson. Umsjónarmaður: Hermann Gunnarsson.

Þættir

,