Á tali hjá Hemma Gunn 1994-1995

Á tali hjá Hemma Gunn 26. október 1994

Hemmi Gunn kynnir fjölbreyttan skemmtiþátt með tónlist og spjalli. Jazzhljómsveit Tómasar R. Einarssonar og hljómsveitin Bong flytja tónlistaratriði, börn úr leikskólanum Tjarnarborg taka þátt í skemmtilegu spjalli og fiðluleikarinn Szymon Kuran kemur í heimsókn og flytur slavneskt þjóðlag. Díddú (Sigrún Hjálmtýsdóttir) syngur lagið Quando, quando og Edda Björgvinsdóttir birtist sem gagnrýnandi með gríninnslag. Í lok þáttar syngur Mæðusöngvasveit Reykjavíkur lag tileinkað þættinum.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 26. október 1994.

Birt

18. nóv. 2020

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Á tali hjá Hemma Gunn 1994-1995

Tekið er á móti góðum gestum í sjónvarpssal, slegið á létta strengi, stiginn dans og sungið. Hljómsveit: Ásgeir Óskarsson, Finnbogi Kjartansson, Magnús Kjartansson og Vilhjálmur Guðjónsson. Dagskrárgerð: Egill Eðvarðsson. Umsjónarmaður: Hermann Gunnarsson.

Þættir

,