Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Í Kastljósi var rætt við Maríu Rún Bjarnadóttur sérfræðing í tæknirétti og stafrænu kynferðisofbeldi um barnaníðinga og leiðir sem þeir nota til að nálgast börn á internetinu.
Þá var rætt við þingmann Flokks fólksins sem vill þrengja að möguleikum dæmdra barnaníðinga til nafnbreytinga.
Svo heimsóttum við minnsta sýningarrými landsins - Gallerí Suð.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Spurningakeppni framhaldsskólanna 2001. Spyrill er Logi Bergmann Eiðsson, Ármann Jakobsson er dómari og höfundur spurninga og stigavörður er Þóra Arnórsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Í þessum þætti mætast lið Fjölbrautaskóla Suðurlands og Menntaskólans í Reykjavík. Keppt er í Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi. Keppendur í liði FSU: Þórhildur Daðadóttir, Páll Sigurðsson og Eyjólfur Þorkelsson. Keppendur í liði Menntaskólans í Reykjavík: Hjalti Snær Ægisson, Svanur Pétursson og Sverrir Teitsson.
- Endursýnt
Sænskir þættir um matarsóun og hvernig hægt er að sporna gegn henni. Þáttastjórnendurnir Anna Lundberg og Paul Svensson kynna áhorfendur fyrir óvæntum uppskriftum að dýrindis réttum sem búnir eru til úr hráefni sem annars hefði verið hent.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Skemmtiþáttur frá 2019 um íslenska tungu í umsjón Bjargar Magnúsdóttur og Braga Valdimars Skúlasonar þar sem þátttakendur etja kappi í fjölbreyttum leikjum og þrautum, meðal annars í taugatrekkjandi stöfunarkeppni og í sérhannaðri útgáfu af hengimanni. Framleiðsla: Skot í samstarfi við RÚV.
Keppendur í þessum þætti eru Steingrímur Ólafsson, Karl Sigurðsson, Auður Jónsdóttir og Birna Anna Björnsdóttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk í bæjum og sveitum og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Hafsteinn Vilhelmsson, Þórdís Claessen og Amanda Guðrún Bjarnadóttir. Dagskrárgerð: Jóhannes Jónsson, Björgvin Kolbeinsson, Benedikt Nikulás Anes Ketilsson, Adelina Antal og Hjalti Stefánsson.
Í Landanum í kvöld kynnum við okkur Tinnitus sem gerir mörgum lífið leitt. Við brunum á fjallahjólum á Ísafirið, við skoðum gamlan sýrutank á Húsavík, sem fengið hefur nýtt hlutverk. Og við hittum ungan og metnarfullan matreiðslumann í Ólafsvík.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt

Þessar þáttaraðir eru áhorfendum að góðu kunnar, enda eru þættirnir bæði afar fræðandi og skemmtilegir en að þessu sinni fræðumst við um jörðina. Þáttunum er ætlað að hvetja yngri áhorfendur til að verða ábyrgir borgarar og hjálpa þeim að skilja umhverfi sitt, svo þeir geti lagt sitt af mörkum til að vernda það.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Jóga fyrir alla krakka í ævintýraheimi með dýrum og náttúru.
Ævintýrajóga hvetur börn til hreyfingar og að vera meðvituð um líkama sinn og líðan. Það gefur þeim verkfæri sem auðveldar þeim að líða vel í eigin líkama og takast á við daglegt líf. Jógakennari: Þóra Rós Guðbjartsdóttir. Framleiðsla: Erla Hrund Hafsteinsdóttir.
Við skulum hreyfa okkur saman eins og kisan. Við kynnumst kisunni og hennar hæfileikum.
- Endursýnt
Þau Ylfa og Máni standa vaktina í eldhúsinu og kenna okkur hvernig á að elda og baka ýmislegt góðgæti. Dagskrárgerð: Eva Rún Þorgeirsdóttir. Umsjón: Ylfa Blöndal og Hilmar Máni Magnússon.
Ylfa og Máni útbúa nammikúlur - sem eru bæði góðar á bragðið og hollar!
Þessar þarf ekki að baka, bara stinga inn í ísskápinn.
Hollar nammikúlur
(sirka 20 stk):
2 dl möndlur, 2 og 1/2 dl ferskar döðlur (eða 10 döðlur - mikilvægt að taka steininn úr), 1 kúfull msk möndlusmjör, 1 tsk hlynsíróp eða agave sýróp, 2 tsk kakó, 1/5 tsk salt.
Hjúpur
100g suðusúkkulaði, 1/2 tsk kókosolía og smá af grófu salti.
Aðferð: Settu möndlurnar í matvinnsluvél. Hakkaðu möndlurnar þar til þær eru orðnar að kurli. Settu döðlurnar (án steina) í matvinnsluvélina og blandaðu. Bættu kakó, salti, sýrópi og möndlusmjöri út í og maukaðu vel saman. Búðu til litlar kúlur úr deiginu.
Settu kúlurnar á disk og geymdu í ísskáp í 30-60 mín.
Hjúpur:
Bræddu súkkulaðið og hrærðu kókosolíunni saman við í pottinum.
Veltu kúlunum upp úr súkkulaðinu og raðaðu þeim á disk.
Það er gott að setja bökunarpappír undir svo þær festist ekki við diskinn.
Stráðu grófa saltinu yfir súkkulaðið að lokum.
Geymdu kúlurnar í ísskáp í allavega 30 mínútur svo súkkulaðið nái að harðna vel.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón: Ari Páll Karlsson, Embla Bachmann og Snæ Humadóttir. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
1. Dagur íslenskrar tungu á mánudaginn 2. Málæði á sunnudaginn 3. Blönduós 150 ára.
Við ljúkum svo þættinum á tónleikum Menntaskólans í tónlist til heiðurs Laufeyju🎤
- Dagskrárliðurinn er textaður
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Bein útsending
Siggi Gunnars stýrir lifandi þætti um dægurmenningu og tekur stöðuna á því sem við horfum á, hlustum á og tölum um. Góðir gestir, skoðanir, húmor og leikgleði í fyrirrúmi. Stjórn upptöku: Þórunn Guðjónsdóttir.
Norðmenn hafa undanfarin ár orðið einir af stóru leikendunum í kvikmynda- og sjónvarpsheiminum. Verðlaun á verðlaun ofan, alþjóðlegir smellir og hver snilldarþáttaröðin á fætur annarri. Hvað gerðist eiginlega í Noregi? Sérfræðingar þáttarins að þessu sinni eru Gísli Örn Garðarsson og Þóra Tómasdóttir sem ætla að reyna að kryfja málið.
Improv Ísland hafa fyllt Þjóðleikhúskjallarann öll miðvikudagskvöld undanfarin ár með vinsælum spunasýningum. Við fórum í heimsókn í kjallarann og kynntum okkur hvað improv er.
Björk Jakobsdóttir og Salka Sól koma svo í spjall, meðmæli og spurningakeppni undir lok þáttar en þær hafa slegið í gegn með sýningunni Bíddu bara, þetta reddast í Bæjarbíó ásamt Selmu Björnsdóttur. Þær segja okkur frá sýningunni.
- Dagskrárliðurinn er textaður
Norskir heimildarþættir frá 2025. Øystein „Pølsa“ Pettersen, fyrrverandi atvinnumaður á gönguskíðum, setur saman lið ungmenna með fötlun af ólíku tagi en á það sameiginlegt að hafa enga reynslu af skíðum. Markmiðið er að þjálfa hópinn á einungis tíu mánuðum til að keppa á heimsmeistaramótinu á gönguskíðum í Þrándheimi.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Bresk spennuþáttaröð um Lexie Noble sem lifir friðsælu lífi í úthverfi Edinborgar, grunlaus um að eiginmaður hennar sér um að þvo peninga fyrir alræmdan glæpaforingja. Aðalhlutverk: Morven Christie, Peter Mullan og Prasanna Puwanarajah. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Önnur þáttaröð leikinna íslenskra þátta. Karen hefur fengið sig fullsadda af Tinder og leitinni að hinni einu sönnu ást. Hún ákveður að segja skilið við stefnumótabransann og læra frekar að elska sjálfa sig en klisjan um að setja sjálfa sig í fyrsta sæti reynist flóknari en sýndist í fyrstu. Aðalhlutverk: Nanna Kristín Magnúsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson. Leikstjóri: Nanna Kristín Magnúsdóttir. Framleiðsla: Cubs Production og Vintage Pictures. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 14 ára.
Karen er á báðum áttum með tilfinningar sínar í ástarlífinu. Matti og Anna Júlía eiga vægast sagt áhugavert kvöld með matarklúbbnum After Eight.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Leikin þáttaröð frá 2024 byggð á samnefndri skáldsögu eftir Alexandre Dumas. Sjómaðurinn Edmond Dantè er svikinn af þremur mönnum og ranglega fangelsaður á eyju við strendur Marseille. Mörgum árum síðar tekst honum að flýja fangelsið og leitar uppi fjársjóð sem samfangi hans sagði honum frá. Hann hefur nýtt líf undir dulnefninu greifinn af Monte Cristo og er staðráðinn í að ná fram hefndum á mönnunum sem sviku hann. Aðalhlutverk: Sam Claflin, Mikkel Boe Følsgaard og Ana Girardot. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt