Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Til eru leikskólar á Íslandi þar sem ekki er gert ráð fyrir bókakaupum vegna fjárskorts. Í Kastljósi greinum við frá nýrri skýrslu um bókakost skólabókasafna og almenningssafna og lestrarmenningu þjóðarinnar. Unnar Geir Unnarsson safnstjóri Borgarbókasafnsins í Úlfarsárdal og Margrét Tryggvadóttir ræddu efni skýrslunnar. Þá heimsótti Guðrún Sóley Listasafn Reykjavíkur þar sem boðið er upp á pólska myndlistarveislu.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1999. Spyrill: Logi Bergmann Eiðsson. Dómari og spurningahöfundur: Illugi Jökulsson. Stigavörður: Þóra Arnórsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Í þessum þætti mætast lið Menntaskólans á Egilsstöðum og Fjölbrautaskóla Suðurlands. Lið Menntaskólans á Egilsstöðum skipa Ríkharður Hjartar Magnússon, Einar Hróbjartur Jónsson og Margrét Urður Snædal. Lið Fjölbrautaskóla Suðurlands skipa Herdís Sigurgrímsdóttir, Eyjólfur Þorkelsson og Sigursveinn Már Sigurðsson.
- Endursýnt
Skemmtiþáttur frá 2019 um íslenska tungu í umsjón Bjargar Magnúsdóttur og Braga Valdimars Skúlasonar þar sem þátttakendur etja kappi í fjölbreyttum leikjum og þrautum, meðal annars í taugatrekkjandi stöfunarkeppni og í sérhannaðri útgáfu af hengimanni. Framleiðsla: Skot í samstarfi við RÚV.
Keppendur í þessum þætti eru Svavar Pétur Eysteinsson, Berglind Häsler, Freyr Gígja Gunnarsson og Júlía Margrét Alexandersdóttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk í bæjum og sveitum og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Hafsteinn Vilhelmsson, Þórdís Claessen og Amanda Guðrún Bjarnadóttir. Dagskrárgerð: Jóhannes Jónsson, Björgvin Kolbeinsson, Benedikt Nikulás Anes Ketilsson, Adelina Antal og Hjalti Stefánsson.
Í Landanum í kvöld kynnum við okkur stöðu langveikra barna á landsbyggðinni, spjöllum við hressa djassara sem kenna músík í tónlistarskólanum á Höfn, fáum okkur kaffi með fólki býr saman, vinnur saman og er yfir sig ástfangið, og kynnum okkur frægasta kynbótagrip okkar Íslendinga, Huppu.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt

Þessar þáttaraðir eru áhorfendum að góðu kunnar, enda eru þættirnir bæði afar fræðandi og skemmtilegir en að þessu sinni fræðumst við um jörðina. Þáttunum er ætlað að hvetja yngri áhorfendur til að verða ábyrgir borgarar og hjálpa þeim að skilja umhverfi sitt, svo þeir geti lagt sitt af mörkum til að vernda það.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Jóga fyrir alla krakka í ævintýraheimi með dýrum og náttúru.
Ævintýrajóga hvetur börn til hreyfingar og að vera meðvituð um líkama sinn og líðan. Það gefur þeim verkfæri sem auðveldar þeim að líða vel í eigin líkama og takast á við daglegt líf. Jógakennari: Þóra Rós Guðbjartsdóttir. Framleiðsla: Erla Hrund Hafsteinsdóttir.
Förum í ferðalag í gegnum skóginn og tökum eftir trjánum og dýrunum sem búa þar. Átt þú þér uppáhalds tré?
- Endursýnt
Þau Ylfa og Máni standa vaktina í eldhúsinu og kenna okkur hvernig á að elda og baka ýmislegt góðgæti. Dagskrárgerð: Eva Rún Þorgeirsdóttir. Umsjón: Ylfa Blöndal og Hilmar Máni Magnússon.
Ylfa og Máni búa til tvær tegundir af boost, sem er tilvalið eftir skóla, annað með skyri og hitt með trönuberjasafa.
Hér eru uppskriftirnar:
Boost með skyri:
120g Frosin jarðaber
120g Frosin bláber
400g Hreint skyr
Klakar
Boost með trönuberjasafa:
120g Frosin jarðaber
120g Frosin bláber
1 banani
Trönuberjasafi
Vatn
Aðferð:
Setjið allt saman í blandara og þeytið vel.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón: Ari Páll Karlsson, Embla Bachmann og Snæ Humadóttir. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
Það er nóg um að vera í þætti dagsins!
1. Hermenn sendir til Parísar og Mílanó vegna mótmæla um helgina 2. Fyrsta sýning þjóðaróperunnar 3. Krakkaskýring: Fyrsti vetrardagur. Svo ljúkum við þættinum á viðburðinum Bókakósý í Kársnesskóla📖☕
- Dagskrárliðurinn er textaður
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Rætt við Hörð Arnarsson, fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar um brotthvarf hans, rætt við Sergy Radchenko, prófessor við John Hopkins háskólann í Bandaríkjunum um utanríkisstefnu Rússlands og farið í heimsókn til Kötlu Karlsdóttur skartgripahönnuðar á Hjalteyri við Eyjafjörð.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Siggi Gunnars stýrir lifandi þætti um dægurmenningu og tekur stöðuna á því sem við horfum á, hlustum á og tölum um. Góðir gestir, skoðanir, húmor og leikgleði í fyrirrúmi. Stjórn upptöku: Þórunn Guðjónsdóttir.
Á hvað er fólk að hlusta? Tónlistargagnrýnendur Miðstöðvarinnar rýna í bestu plötur haustsins.
Hver er Unnur Borg? Hún skaust upp á stjörnuhimininn á TikTok með því að auglýsa kjóla og sendi svo frá sér lagið Barnsfaðir í sumar sem sló í gegn. Hver er þessi tvítuga athafnakona? Við höngum í Kringlunni með Unni eða UB í Miðstöðinni.
Sóli Hólm og Halldór Smárason hafa undanfarin ár sett saman sýninguna Jóla Hólm sem hefur slegið hvert aðsóknarmetið á fætur öðru í Bæjarbíói í Hafnarfirði fyrir jólin. Vinirnir koma í spjall, spurningakeppni og meðmæli vikunnar.
- Dagskrárliðurinn er textaður
Norskir heimildarþættir frá 2025. Øystein „Pølsa“ Pettersen, fyrrverandi atvinnumaður á gönguskíðum, setur saman lið ungmenna með fötlun af ólíku tagi en á það sameiginlegt að hafa enga reynslu af skíðum. Markmiðið er að þjálfa hópinn á einungis tíu mánuðum til að keppa á heimsmeistaramótinu á gönguskíðum í Þrándheimi.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Bresk spennuþáttaröð um Lexie Noble sem lifir friðsælu lífi í úthverfi Edinborgar, grunlaus um að eiginmaður hennar sér um að þvo peninga fyrir alræmdan glæpaforingja. Aðalhlutverk: Morven Christie, Peter Mullan og Prasanna Puwanarajah. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Önnur þáttaröð leikinna íslenskra þátta. Karen hefur fengið sig fullsadda af Tinder og leitinni að hinni einu sönnu ást. Hún ákveður að segja skilið við stefnumótabransann og læra frekar að elska sjálfa sig en klisjan um að setja sjálfa sig í fyrsta sæti reynist flóknari en sýndist í fyrstu. Aðalhlutverk: Nanna Kristín Magnúsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson. Leikstjóri: Nanna Kristín Magnúsdóttir. Framleiðsla: Cubs Production og Vintage Pictures. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 14 ára.
Karen heldur upp á afmælið sitt með stæl. Vöntun á víni setur stórt strik í reikninginn þangað til óvæntur gestur reddar málunum.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Leikin þáttaröð frá 2024 byggð á samnefndri skáldsögu eftir Alexandre Dumas. Sjómaðurinn Edmond Dantè er svikinn af þremur mönnum og ranglega fangelsaður á eyju við strendur Marseille. Mörgum árum síðar tekst honum að flýja fangelsið og leitar uppi fjársjóð sem samfangi hans sagði honum frá. Hann hefur nýtt líf undir dulnefninu greifinn af Monte Cristo og er staðráðinn í að ná fram hefndum á mönnunum sem sviku hann. Aðalhlutverk: Sam Claflin, Mikkel Boe Følsgaard og Ana Girardot. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt