18:20
Miðstöðin
Gagnrýni á Boltamömmur og Dagbók lögreglunnar, YUNGAMLI og dýnamískt leikarapar

Siggi Gunnars stýrir lifandi þætti um dægurmenningu og tekur stöðuna á því sem við horfum á, hlustum á og tölum um. Góðir gestir, skoðanir, húmor og leikgleði í fyrirrúmi. Stjórn upptöku: Þórunn Guðjónsdóttir.

Gagnrýnendur Miðstöðvarinnar fjalla um nýja íslenska sjónvarpsþætti: Boltamömmur í Sjónvarpi Símans og Dagbók lögreglunnar hjá SÝN+. Siggi skellir sér í bogfimisetrið og kynnist tónlistarmanninum YUNGAMLA og svo kemur leikaraparið Jakob Van Oosterhaut og Berglind Alda í heimsókn.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 28 mín.
Leyft öllum aldurshópum
  • Dagskrárliðurinn er textaður
  • Endursýnt
,