Það besta í tónlistinni, Unnur Borg og Jóli Hólm
Á hvað er fólk að hlusta? Tónlistargagnrýnendur Miðstöðvarinnar rýna í bestu plötur haustsins.
Gagnrýnendur Miðstöðvarinnar fjalla um nýja íslenska sjónvarpsþætti: Boltamömmur í Sjónvarpi Símans og Dagbók lögreglunnar hjá SÝN+. Siggi skellir sér í bogfimisetrið og kynnist tónlistarmanninum YUNGAMLA og svo kemur leikaraparið Jakob Van Oosterhaut og Berglind Alda í heimsókn.

Siggi Gunnars stýrir lifandi þætti um dægurmenningu og tekur stöðuna á því sem við horfum á, hlustum á og tölum um. Góðir gestir, skoðanir, húmor og leikgleði í fyrirrúmi. Stjórn upptöku: Þórunn Guðjónsdóttir.