Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Spurningakeppni framhaldsskólanna 2001. Spyrill er Logi Bergmann Eiðsson, Ármann Jakobsson er dómari og höfundur spurninga og stigavörður er Þóra Arnórsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Fyrri viðureign í undanúrslitum. Í þessum þætti mætast lið Menntaskólans í Reykjavík og Menntaskólans á Akureyri. Keppt er í Framheimilinu í Reykjavík. Fyrir MR keppa: Hjalti Snær Ægisson, Svanur Pétursson og Sverrir Teitsson. Fyrir MA keppa: Hjálmar Stefán Brynjólfsson, Jón Eggert Víðisson og Reginn Hólm Ketilsson.
- Endursýnt
Sænsk þáttaröð um mikilvægi jákvæðrar líkamsímyndar. Blaðakonan og aðgerðasinninn Anni Emilia Alentola hittir fólk af öllum stærðum og gerðum og ræðir um líkamann og hvernig maður getur losað sig undan samfélagslegum normum.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Heimildarmynd frá 2021 um hvernig söngur í kór getur haft langvarandi jákvæð áhrif á börn og unglinga. Rætt er við núverandi og fyrrverandi félaga í barna- og unglingakórum Selfosskirkju um hvernig kórsöngurinn hefur mótað þau. Dagskrárgerð: Anna Edit Dalmay.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Danskur þáttur frá 2020 um sjálfstæða fjárfesta sem dreymir um að þurfa ekki að reiða sig á mánaðarleg laun og vinna markvisst að því að láta drauminn rætast. Í þættinum deila þau með áhorfendum aðferðum sínum við að auka verðmæti með fjárfestingum.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Siggi Gunnars stýrir lifandi þætti um dægurmenningu og tekur stöðuna á því sem við horfum á, hlustum á og tölum um. Góðir gestir, skoðanir, húmor og leikgleði í fyrirrúmi. Stjórn upptöku: Þórunn Guðjónsdóttir.
Norðmenn hafa undanfarin ár orðið einir af stóru leikendunum í kvikmynda- og sjónvarpsheiminum. Verðlaun á verðlaun ofan, alþjóðlegir smellir og hver snilldarþáttaröðin á fætur annarri. Hvað gerðist eiginlega í Noregi? Sérfræðingar þáttarins að þessu sinni eru Gísli Örn Garðarsson og Þóra Tómasdóttir sem ætla að reyna að kryfja málið.
Improv Ísland hafa fyllt Þjóðleikhúskjallarann öll miðvikudagskvöld undanfarin ár með vinsælum spunasýningum. Við fórum í heimsókn í kjallarann og kynntum okkur hvað improv er.
Björk Jakobsdóttir og Salka Sól koma svo í spjall, meðmæli og spurningakeppni undir lok þáttar en þær hafa slegið í gegn með sýningunni Bíddu bara, þetta reddast í Bæjarbíó ásamt Selmu Björnsdóttur. Þær segja okkur frá sýningunni.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt

Önnur sería af Silfruskógi, sem er bresk sjónvarpsþáttaröð úr heimi vísindaskáldskapar fyrir unglinga. Lous, Meg, Glen og Kaz uppgötva að hópurinn þeirra er bara einn þeirra fjögurra sem taka þátt í leiknum um að bjarga heiminum.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Önnur þáttaröð af Eilífu drama. Hvað gerist þegar besta vinkonan byrjar að hanga með einhverjum öðrum? Saga um vináttu sem rofnar og breytist. Þáttaröðin er á sænsku með íslenskum texta.
Hvernig getur Ella hreinsað nafn Oliviu án þess að lenda sjálf í vandræðum? Og hvernig á hún að losna undan Alexu og Danne?
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Fjórir efnilegir knattspyrnuiðkendur. Einn draumur. Ekkert er sjálfgefið. Sumir berjast fyrir því að falla inn í hópinn, aðrir fyrir því að valda ekki vonbrigðum. Serían er á norsku með íslenskum texta.
Ravnmyra gegn Kóngserni. Kamal, Leon og Amund takast á.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Kraftur er norskur heimildarþáttur sem fylgir hópi ungra dansara í streetdance-senunni í Ósló, þar sem þeir keppa, æfa og takast á við drauma, vináttu og sjálfsmynd sína á sama tíma og þeir reyna að ná langt í dansi.
Jezzy er kvíðin fyrir tökum og Oda verður pirruð yfir því að vera aldrei valin.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi

Breskir gamanþættir frá 2025 um hina óviðjafnanlegu Jessop-fjölskyldu. Daglegt líf þeirra er heldur óreiðukennt og yngsti sonurinn Sam festir það allt á filmu. Aðalhlutverk: Katherine Parkinson, Jim Howick og Freya Parks. Handritshöfundur: Tom Basden.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi

Gísli Marteinn tekur á móti góðum gestum á föstudagskvöldum í vetur og fer með þeim yfir helstu atburði vikunnar í stjórnmálum, menningu og mannlífi. Persónur og leikendur koma í spjall og brakandi fersk tónlistaratriði koma landsmönnum í helgarstemninguna. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.
Gestir þáttarins eru Jón Ásgeir Jóhannesson, Pétur Jóhann Sigfússon og Yrsa Sigurðardóttir.
Berglind Festival fer yfir fréttir Vikunnar og Salka Gústafs er fréttamaður á vettvangi.
Milkywhale og Kvæðakórinn flytja kvæðasyrpu.
Guðni Kolbeinsson er með Sögu til næsta bæjar.
Maron Birnir lokar þættinum með laginu Komdu með.
- Bein útsending
Bandarísk verðlaunamynd frá 1990 í leikstjórn Tim Burtons. Edward er óklárað sköpunarverk uppfinningamanns sem lést áður en verkinu var lokið. Hann er einn og yfirgefinn þar til góðhjörtuð kona að nafni Peg tekur hann undir sinn verndarvæng og leyfir honum að búa heima hjá sér og fjölskyldu sinni. Aðalhlutverk: Johnny Depp, Winona Ryder og Dianne Wiest. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Önnur þáttaröð þessara bresku sakamálaþátta. Rannsóknarlögreglukonan Sarah Collins rannsakar óupplýst hvarf unglingsstúlku sem hefur verið saknað í aldarfjórðung. Þættirnir eru byggðir á glæpasögum eftir Kate London, fyrrum lögreglukonu í London. Aðalhlutverk: Gemma Whelan, Tahirah Sharif og Emmett J. Scanlan. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt