
Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Þegar afi ykkar er búin að þjálfa ykkur sem skrímslaveiðimenn, þá er ekkert annað í stöðunni en að veiða öll skrímslin! Það er þó eitt vandamál, krakkarnir elska skrímslin og vilja helst bara bjarga þeim. Það geta þau gert á meðan afi blundar, eða hvað?
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Gamansamir þættir um strútapabbann Edda og áttburana hans. Eddi strútapabbi er fullkomnunarsinni og reynir að gera allt sem í hans valdi stendur til að vernda áttburana sína. Hann á fullt í fangi með það, enda eru ævintýrin hjá stórri fjölskyldu mörg og ímyndunaraflið mikið.
Eddi strútapabbi er dauðhræddur um að sonur sinn sem heldur flug-sýningu fyrir fjölskyldu sína hrapi!
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Dana er 9 ára stelpa sem elskar risaeðlur. Líf hennar breytist til frambúðar þegar hún fær gefins handbók um risaeðlur, sem kennir henni ekki aðeins nýja hluti um dýrin, heldur gefur henni ofurkrafta sem gera henni kleift að sjá fyrir sér risaeðlur í raunveruleikanum.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Þáttaröð frá 2015 úr smiðju Ævars vísindamanns. Í þessari þáttaröð leggur Ævar allt undir. Laufblásara-knúin svifbretti, segulskór og skordýrahamborgari eru bara nokkrar af þeim æsispennandi tilraunum sem koma fyrir. Dagskrárgerð: Ævar Þór Benediktsson og Eggert Gunnarsson
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Íslensk fræðslumynd í tveimur hlutum um áhrif lífsstíls á heilsufar manna, en á undanförnum árum hefur áherslan á heilbrigt líferni vegið æ þyngra í baráttunni við ýmsa sjúkdóma. Dagskrárgerð: Páll Kristinn Pálsson og Aðalgeir Gestur Vignisson.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Gísli Marteinn tekur á móti góðum gestum á föstudagskvöldum í vetur og fer með þeim yfir helstu atburði vikunnar í stjórnmálum, menningu og mannlífi. Persónur og leikendur koma í spjall og brakandi fersk tónlistaratriði koma landsmönnum í helgarstemninguna. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.
Gestir þáttarins eru Ari Eldjárn, Páll Magnússon og Vera Illugadóttir.
Berglind Festival færir landsmönnum fréttir Vikunnar og Salka Gústafs stendur fyrir söfnun.
Saxafónsveit Tuma Torfasonar flytur nokkur af helstu stefjum sjónvarpssögunnar.
Tatjana frumflytur lagið Loforð í lok þáttar.
- Endursýnt
Heimildarþættir um fjölmenningu í íslensku samfélagi. Mannflóran er fjölbreyttari en nokkru sinni fyrr og þjóðarímyndin breytist með auknum fjölda fólks af erlendum uppruna. Ljósi er varpað á erfiðleikana sem fólk af erlendum uppruna mætir í íslensku samfélagi og fjallað um kosti fjölmenningar. Umsjón: Chanel Björk Sturludóttir.
Menning er fljótandi og flæðir milli samfélaga og þjóðernishópa daglega. Menningarnám hefur verið í deiglunni á síðustu árum og fólk greinir á um réttmæti hugtaksins í baráttunni gegn rasisma. Í þættinum er leitast við að skýra hugtakið og komast að því hvar línan liggur.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk í bæjum og sveitum og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Hafsteinn Vilhelmsson, Þórdís Claessen og Amanda Guðrún Bjarnadóttir. Dagskrárgerð: Jóhannes Jónsson, Björgvin Kolbeinsson, Benedikt Nikulás Anes Ketilsson, Adelina Antal og Hjalti Stefánsson.
Í Landanum í kvöld kynnumst við bókasöfnum framtíðar, við hittum uppáhalds sláttumann Patreksfirðinga, við tökum sjálfu með hestum og hittum hnífasmið fyrir Norðan.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Heimildarþáttaröð um baráttuna við COVID-19 þar sem fylgst er með störfum þeirra sem stjórnuðu aðgerðum í faraldrinum. Í þáttunum er einblínt á mannlega hlið faraldursins og sagt frá sorgum og sigrum í baráttu þjóðarinnar við að hemja útbreiðslu veiru sem setti heimsbyggðina á hliðina. Leikstjóri: Sævar Guðmundsson. Framleiðendur: Sævar Guðmundsson, Jóhannes Kr. Kristjánsson, Anna Karen Kristjánsdóttir og Brynja Gísladóttir.
Reykvíkingar flykkjast á djammið og smitum hríðfjölgar í kjölfarið. Þríeykið ákveður að loka vínveitingastöðum. Sjúklingar á Landakoti smitast einn af öðrum og dánartölur hækka hratt. Smitaðir einstaklingar eru sendir á hjúkrunarheimili á landsbyggðinni.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Jón Múli var heimilisvinur landsmanna um áratuga skeið sem útvarpsþulur, dagskrárgerðarmaður og djassunnandi. Hann var líka þjóðkunnur fyrir lög sín eða söngdansa eins og hann kaus að kalla þau. Í þáttabrotum frá liðnum árum flytur fjöldi listamanna tónlist hans, hann segir frá sjálfum sér og tekur líka lagið.
Umsjón og dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Íslenskir heimildaþættir frá 2026. Í október 1986 ákváðu Ronald Reagan forseti Bandaríkjanna og Mikhail Gorbatsjev leiðtogi Sovétríkjanna að funda í Reykjavík, öllum að óvörum. Í þáttunum er fjallað um hvernig Íslendingar lögðu allt undir við að halda leiðtogafund risaveldanna með aðeins tólf daga fyrirvara. Hvaða áhrif hafði fundurinn á sálarlíf og sjálfsmynd íslensku þjóðarinnar og hverjar voru afleiðingar hans? Leikstjóri: Árni Þór Jónsson. Framleiðsla: Republik.
Bandaríkjaforseti og leiðtogi Sovétríkjanna ákveða með örskömmum fyrirvara að funda um afvopnun í Reykjavík. Þegar Íslendingar samþykkja að halda fundinn streyma erlendir ferðamenn til landsins í þúsundavís. Þjóðfélagið fer á hvolf og það skellur á sannkölluð gullgrafarastemning.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Íslensk þáttaröð sem fjallar um ævina frá upphafi til enda. Einblínt er á eitt æviskeið í einu og skoðað hvað hver kynslóð er að fást við. Sagðar eru sögur af fólki á öllum aldri og tekist á við stórar spurningar. Dagskrárgerð: Eiríkur Ingi Böðvarsson og Sigríður Halldórsdóttir.
Í þessum þætti er fjallað um fullorðinsárin. Þetta er tíminn þar sem maður á að vera allt í öllu; koma sér upp þaki yfir höfuðið, eignast börn (og ala þau upp), standa sig í vinnunni, mæta í ræktina, sinna vinum og fjölskyldu, taka MBA-námið með fram - og ekki fá taugaáfall. Einn, tveir og byrja. Dagskrárgerð: Eiríkur Ingi Böðvarsson og Sigríður Halldórsdóttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt

Hvernig hugsa helstu listamenn og hugsuðir Svíþjóðar og hvaðan sækja þau sér innblástur og hvatningu? Í þessum þáttum er rætt við sænska meistara um sköpunarferlið, ákvarðanatöku og það hvernig mistök geta leitt til nýrra sigra.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Spennandi spurningaþáttur í beinni útsendingu þar sem baggalúturinn Guðmundur Pálsson og sjónvarpskonan Sigrún Ósk Kristjánsdóttir halda um stjórnartaumana. Fulltrúar bæjarfélaga um allt land spreyta sig á spurningum, glíma við heilabrot og leysa ýmsar þrautir. Hvaða lið stendur uppi sem landsmeistari? Stjórn útsendingar: Sturla Skúlason.
Reykjavík austur mætir Vesturbyggð. Keppendur frá Reykjavík austur eru Birgir Ólafsson, Lilja Katrín Gunnarsdóttir og Guðmundur R. Einarsson. Keppendur frá Vesturbyggð eru Bergdís Þrastardóttir, Bjarni Snæbjörnsson og Gísli Ægir Ágústsson.
- Dagskrárliðurinn er textaður sjálfvirkt
- Bein útsending
Gamanmynd frá 2004 úr smiðju Stuðmanna. Myndin segir að mestu frá sömu persónum og komu fram í Með allt á hreinu en nú eru þær rúmum tveimur áratugum eldri. Engum þeirra hefur tekist að slá í gegn nema kannski rótaranum Dúdda sem hefur snúið sér að andlegum málefnum. Harpa Sjöfn og Kristinn Styrkársson Proppé eiga enn í nokkuð spennuþrungnum samskiptum. Leikstjóri: Ágúst Guðmundsson. Aðalhlutverk: Egill Ólafsson, Ragnhildur Gísladóttir, Eggert Þorleifsson, Jakob Frímann Magnússon, Ásgeir Óskarsson, Tómas M. Tómasson, Þórður Árnason og Höskuldur Ólafsson.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Bandarískt drama frá 2014 í leikstjórn Davids Gordon Green. Manglehorn er sérvitur lásasmiður í smábæ í Bandaríkjunum. Hann lifir fábreyttu lífi sem hefur litast af ástarsorg frá því að ástin í lífi hans rann honum úr greipum fyrir mörgum árum. Líf hans tekur stakkaskiptum þegar hann kynnist hinni góðhjörtuðu Dawn. Aðalhlutverk: Al Pacino, Holly Hunter og Harmony Korine.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Breskt drama frá 2025 um tvö pör sem komast að því sonum þeirra var víxlað á fæðingardeildinni. Eiga þau að halda barninu sem þau ólu upp eða fá líffræðilegt barn sitt aftur? Aðalhlutverk: James Norton, Niamh Algar, James McArdle og Jessica Brown Findlay. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson.
Kjarasamningar, staðan á vinnumarkaði, leigubremsa, forsetakjör ASÍ, heimsókn Marco Rubio og fleira verða til umræðu í Vikulokunum í dag.
I. hluti: Kjarasamningar, vinnumarkaður og leigubremsa
Aldís Guðný Sigurðardóttir, sérfræðingur í samningatækni
Már Wolfgang Mixa, prófessor í viðskiptafræði
Sigurður Pétursson, sagnfræðingur og kennari við Menntaskólann að Laugarvatni
II. hluti: ASÍ
Georg Páll Skúlason, formaður GRAFÍU og frambjóðandi til embættis forseta ASÍ
Arnaldur Grétarsson, sérfræðingur í stafrænni miðlun og frambjóðandi til embættis forseta ASÍ
III. hluti: Vikan á þingi
Sandra Sigurðardóttir, þingmaður Viðreisnar
Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins
- Bein útsending