Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Rætt við Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, um leigubremsu og önnur mál sem hann stendur fyrir. Rætt við Ejler Borch, 101s árs andspyrnuhetju frá Danmörku, síðasta andspyrnumanninn úr síðari heimsstyrjöldinni sem enn er á lífi. Þá er danssýningin Púðlusafnið á dagskrá.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 2000. Spyrill: Logi Bergmann Eiðsson. Dómari og spurningahöfundur: Ólína Þorvarðardóttir. Stigavörður: Þóra Arnórsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Í þessum þætti mætast lið Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi og Menntaskólans við Sund. Lið Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi skipa Andrés Björgvin Böðvarsson, Ómar Freyr Sigurbjörnsson og Lárus Viðar Lárusson. Lið Menntaskólans við Sund skipa Jón Atli Kjartansson, Jón Trausti Reynisson og Ásbjörn Jónasson.
- Endursýnt
Skemmtiþáttur frá 2019 um íslenska tungu í umsjón Bjargar Magnúsdóttur og Braga Valdimars Skúlasonar þar sem þátttakendur etja kappi í fjölbreyttum leikjum og þrautum, meðal annars í taugatrekkjandi stöfunarkeppni og í sérhannaðri útgáfu af hengimanni. Framleiðsla: Skot í samstarfi við RÚV.
Keppendur í þessum þætti eru Kamilla Einarsdóttir, Júlía Margrét Eindarsdóttir, Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir og María Hjálmtýsdóttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk í bæjum og sveitum og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Hafsteinn Vilhelmsson, Þórdís Claessen og Amanda Guðrún Bjarnadóttir. Dagskrárgerð: Jóhannes Jónsson, Björgvin Kolbeinsson, Benedikt Nikulás Anes Ketilsson, Adelina Antal og Hjalti Stefánsson.
Í Landanum í kvöld ætlum við að ferðast með hjálp sýndarveruleika, við kaupum okkur fisk í sjálfssala á Tálknafirði, við förum ríðandi um Njáluslóðir og við skoðum hlaðin hús á Austurlandi.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt

Þessar þáttaraðir eru áhorfendum að góðu kunnar, enda eru þættirnir bæði afar fræðandi og skemmtilegir en að þessu sinni fræðumst við um jörðina. Þáttunum er ætlað að hvetja yngri áhorfendur til að verða ábyrgir borgarar og hjálpa þeim að skilja umhverfi sitt, svo þeir geti lagt sitt af mörkum til að vernda það.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Jóga fyrir alla krakka í ævintýraheimi með dýrum og náttúru.
Ævintýrajóga hvetur börn til hreyfingar og að vera meðvituð um líkama sinn og líðan. Það gefur þeim verkfæri sem auðveldar þeim að líða vel í eigin líkama og takast á við daglegt líf. Jógakennari: Þóra Rós Guðbjartsdóttir. Framleiðsla: Erla Hrund Hafsteinsdóttir.
Fílinn er stórskemmtilegt dýr og hreyfir sig svo mikið, við lærum að elska fílinn af því að hann kennir okkur svolítið mikilvægt
- Endursýnt
Þau Ylfa og Máni standa vaktina í eldhúsinu og kenna okkur hvernig á að elda og baka ýmislegt góðgæti. Dagskrárgerð: Eva Rún Þorgeirsdóttir. Umsjón: Ylfa Blöndal og Hilmar Máni Magnússon.
Í þessum þætti elda Ylfa og Máni gómsæta hamborgara úr nautakjöti og sojakjöti fyrir grænmetisætur.
Síðan búa þau til mjög einfalda kokteilsósu.
Hamborgarar
1 Grænmetisborgari
1 Hamborgari úr nautakjöti
1-2 msk olía á pönnu
1 tsk hamborgararkrydd
Sneið ostur
Settu hamborgarann á heita pönnuna,
kryddaðu með hamborgarakryddi og steiktu á báðum hliðum þar til hamborgarinn er orðinn dökkur á lit. Settu ostsneið ofan á og láttu ostinn bráðna.
Kokteilsósa
2 msk majones (má vera vegan majones), 1 msk tómatsósa og hræra vel saman.
Skerðu niður sneiðar af: Gúrku, tómat og káli. Settu sósuna á hamborgarabrauðið, síðan hamborgarann og loks grænmeti að eigin vali.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Örfáir dagar eru til kosninga í Bandaríkjunum þar sem mikið er í húfi. Í Kastljósi var rætt við Bryndísi Ísfold Hlöðversdóttur, aðjúnkt við Háskólann á Bifröst og Hafstein Einarsson doktor í félagstölfræði. Þau rýndu í þau ríki sem vert er að fylgjast með í aðdraganda kosninga. Þá var í Kastljósi rætt við vinnustaðasálfræðing um hópuppsagnir.
Dáðadrengirnir í Iceguys syngja sinn svanasöng með kvikmynd sem frumsýnd var í kvöld og fjallað var um í þættinum.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Bein útsending
Siggi Gunnars stýrir lifandi þætti um dægurmenningu og tekur stöðuna á því sem við horfum á, hlustum á og tölum um. Góðir gestir, skoðanir, húmor og leikgleði í fyrirrúmi. Stjórn upptöku: Þórunn Guðjónsdóttir.
Álitsgjafar þáttarins, Kolfinna Nikulásdóttir og Atli Már Steinarsson, kryfja menningarfyrirbærið Kanye West.
Við kynnumst tónlistarmanninum Hafsteini Þráinssyni sem er maður margra hatta. Hann er mjög virkur í gerð kvikmyndatónlistar og segir okkur allt um það. Hafsteinn frumflytur lag í þættinum sem hann gefur út undir listamannsnafninu Ceasetone.
Grínistarnir og glaumgosarnir Sandra Barilli og Jóhann Alfreð koma í spjall, meðmæli og spurningakeppni. Þau segja okkur frá karókíkeppni sem þau standa fyrir á næstunni.
- Dagskrárliðurinn er textaður
Norskir heimildarþættir frá 2025. Øystein „Pølsa“ Pettersen, fyrrverandi atvinnumaður á gönguskíðum, setur saman lið ungmenna með fötlun af ólíku tagi en á það sameiginlegt að hafa enga reynslu af skíðum. Markmiðið er að þjálfa hópinn á einungis tíu mánuðum til að keppa á heimsmeistaramótinu á gönguskíðum í Þrándheimi.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Bresk spennuþáttaröð um Lexie Noble sem lifir friðsælu lífi í úthverfi Edinborgar, grunlaus um að eiginmaður hennar sér um að þvo peninga fyrir alræmdan glæpaforingja. Aðalhlutverk: Morven Christie, Peter Mullan og Prasanna Puwanarajah. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Önnur þáttaröð leikinna íslenskra þátta. Karen hefur fengið sig fullsadda af Tinder og leitinni að hinni einu sönnu ást. Hún ákveður að segja skilið við stefnumótabransann og læra frekar að elska sjálfa sig en klisjan um að setja sjálfa sig í fyrsta sæti reynist flóknari en sýndist í fyrstu. Aðalhlutverk: Nanna Kristín Magnúsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson. Leikstjóri: Nanna Kristín Magnúsdóttir. Framleiðsla: Cubs Production og Vintage Pictures. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 14 ára.
Karen er boðið í spennandi óvissuferð út fyrir bæinn. Hún er óörugg yfir því hvað sé í vændum en endar á að fara alla leið í gleðskapnum og rúmlega það.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Leikin þáttaröð frá 2024 byggð á samnefndri skáldsögu eftir Alexandre Dumas. Sjómaðurinn Edmond Dantè er svikinn af þremur mönnum og ranglega fangelsaður á eyju við strendur Marseille. Mörgum árum síðar tekst honum að flýja fangelsið og leitar uppi fjársjóð sem samfangi hans sagði honum frá. Hann hefur nýtt líf undir dulnefninu greifinn af Monte Cristo og er staðráðinn í að ná fram hefndum á mönnunum sem sviku hann. Aðalhlutverk: Sam Claflin, Mikkel Boe Følsgaard og Ana Girardot. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt