Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Örfáir dagar eru til kosninga í Bandaríkjunum þar sem mikið er í húfi. Í Kastljósi var rætt við Bryndísi Ísfold Hlöðversdóttur, aðjúnkt við Háskólann á Bifröst og Hafstein Einarsson doktor í félagstölfræði. Þau rýndu í þau ríki sem vert er að fylgjast með í aðdraganda kosninga. Þá var í Kastljósi rætt við vinnustaðasálfræðing um hópuppsagnir.
Dáðadrengirnir í Iceguys syngja sinn svanasöng með kvikmynd sem frumsýnd var í kvöld og fjallað var um í þættinum.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Bein útsending
