22:15
Frelsishetjan
Braveheart

Óskarsverðlaunamynd frá 1995 með Mel Gibson í aðalhlutverki. Myndin gerist á 13. öld og segir frá Skotanum William Wallace sem gerist leiðtogi uppreisnarmanna og berst gegn yfirráðum Játvarðs fyrsta Englandskonungs. Leikstjóri: Mel Gibson. Meðal leikenda eru Sophie Marceau, Patrick McGoohan og Angus Macfadyen. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.

Er aðgengilegt til 25. október 2026.
Lengd: 2 klst. 50 mín.
Ekki við hæfi yngri en 16 áraOfbeldiGróft mál
  • Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
  • Endursýnt
,