Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Rætt við Þorbjörgu Sigríðu Gunnlaugsdóttur, dómsmálaráðherra um dómsmál, lögreglumál, útlendingamál og innri mál flokks hennar, Viðreisnar. Fjallað um úrslit kosninga í Bandaríkjunum 3. nóvember þar sem kosið var til bæði fulltrúadeildar og öldungadeildar, auk annarra embætta víða um landið.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 2000. Spyrill: Logi Bergmann Eiðsson. Dómari og spurningahöfundur: Ólína Þorvarðardóttir. Stigavörður: Þóra Arnórsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Í þessum þætti mætast lið Menntaskólans við Hamrahlíð og Menntaskólans við Sund í seinni undanúrslitum. Lið Menntaskólans við Hamrahlíð skipa Jón Árni Helgason, Friðrik Jensen Karlsson og Anna Pála Sverrisdóttir. Lið Menntaskólans við Sund skipa Jón Atli Kjartansson, Jón Trausti Reynisson og Ásbjörn Jónasson.
- Endursýnt
Heimildarmynd frá 2024 í tveimur hlutum þar sem fjallað er um tækniframfarir og sögu verkfræði á Íslandi. Sagan hefst í upphafi 20. aldar þegar þjóðin steig sín fyrstu skref til tæknivæðingar. Þar með hófst eitt mesta umbreytingaskeið Íslandssögunnar þar sem þjóðin fór frá vanefnum til velfarnaðar á nær öllum sviðum mannlífsins. Leikstjórar: Adrian Freyr Rodriguez og Einar Kári Jóhannsson.
Fjallað er um upphaf tæknivæðingar á Íslandi. Sagan hefst um aldamótin 1900 þegar fyrstu íslensku verkfræðingarnir skila sér heim úr námi. Landið er nær óskrifað blað og verkfræðingarnir taka til hendinni með víðtækri uppbyggingu.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Skemmtiþáttur frá 2019 um íslenska tungu í umsjón Bjargar Magnúsdóttur og Braga Valdimars Skúlasonar þar sem þátttakendur etja kappi í fjölbreyttum leikjum og þrautum, meðal annars í taugatrekkjandi stöfunarkeppni og í sérhannaðri útgáfu af hengimanni. Framleiðsla: Skot í samstarfi við RÚV.
Keppendur í þessum þætti eru Gunnar Hansson, Guðrún Gunnarsdóttir, Stefán Hilmarsson og Eyjólfur Kristjánsson.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk í bæjum og sveitum og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Hafsteinn Vilhelmsson, Þórdís Claessen og Amanda Guðrún Bjarnadóttir. Dagskrárgerð: Jóhannes Jónsson, Björgvin Kolbeinsson, Benedikt Nikulás Anes Ketilsson, Adelina Antal og Hjalti Stefánsson.
Við hittum ungt par á Akureyri sem fékk erfitt verkefni á árinu, við teljum laxa og hittum farandsvein á leið út í heim.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt

Þessar þáttaraðir eru áhorfendum að góðu kunnar, enda eru þættirnir bæði afar fræðandi og skemmtilegir en að þessu sinni fræðumst við um jörðina. Þáttunum er ætlað að hvetja yngri áhorfendur til að verða ábyrgir borgarar og hjálpa þeim að skilja umhverfi sitt, svo þeir geti lagt sitt af mörkum til að vernda það.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Jóga fyrir alla krakka í ævintýraheimi með dýrum og náttúru.
Ævintýrajóga hvetur börn til hreyfingar og að vera meðvituð um líkama sinn og líðan. Það gefur þeim verkfæri sem auðveldar þeim að líða vel í eigin líkama og takast á við daglegt líf. Jógakennari: Þóra Rós Guðbjartsdóttir. Framleiðsla: Erla Hrund Hafsteinsdóttir.
Við kynnumst hundinum, og skoðum saman af hverju hann er svona áhugaverður
- Endursýnt
Þau Ylfa og Máni standa vaktina í eldhúsinu og kenna okkur hvernig á að elda og baka ýmislegt góðgæti. Dagskrárgerð: Eva Rún Þorgeirsdóttir. Umsjón: Ylfa Blöndal og Hilmar Máni Magnússon.
Í þessum þætti töfra þau Ylfa og Máni fram gómsæta kanilfléttu sem er mjög einfalt að baka og alveg tilvalið að bjóða upp á í kaffitímanum. Umsjón: Ylfa Blöndal og Hilmar Máni Magnússon
Kanilflétta
1-2 msk sykur, 1-2 msk púðursykur, 1 msk kanill, 4 msk (60gr) smjör við stofuhita
Deig: tilbúið pizza deig úr matvörubúðinni.
Glassúr: 60 gr rjómaostur, 4 msk brætt smjör, 1/2 tsk vanilludropar, 90 gr flórsykur
Aðferð: Hitaðu ofnin 180 gráður. Blandaðu sykri, púðursykri, kanil og smjöri saman þangað til það er orðið að kanil-sykur-smöri sem hægt er að smyrja á deigið. Rúllaðu út deiginu. Smyrðu kanil-sykur-smjörinu á deigið. Rúllaðu deiginu upp. Skerðu rúlluna í tvennt - eftir lengri hliðinni - en ekki alveg í gegn. Taktu halana tvo og snúðu þeim utan um hvorn annan eins og fléttu. Festu endana saman svo úr verði krans. Bakaðu í um 20-30 mín - það er misjafnt eftir ofnum hversu lengi. Fylgstu með því hvenær deigið er fullbakað.
Glassúr: Blandaðu öllum hráefnunum saman í skál og hrærðu vel.
Smyrðu glassúr á nýbakaða kanilfléttuna.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón: Ari Páll Karlsson, Embla Bachmann og Snæ Humadóttir. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
Í þætti dagsins er frumsýning á tónlistarmyndbandi við Kærleikslagið eftir Gísellu Hannesdóttur💕🎶 Lagið var samið í tilefni af degi gegn einelti sem er á sunnudaginn, 8. nóvember.
1. Hvað er einelti? 2. Viðtal við Gísellu, höfund Kærleikslagsins 3. Frumsýning á tónlistarmyndbandi Kærleikslagsins.
- Dagskrárliðurinn er textaður
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Ýmsar breytingar gætu verið í farvatninu hjá ÁTVR á borð við heimsendingarþjónustu. Í Kastljósi var rætt við forstjóra ÁTVR um erfiðan rekstur og breytingar. Hún vill að ríkisstjórnin skýri þá lagalegu óvissu sem umlykur málaflokkinn í ljósi fjölda vefverslana með áfengi. Þá var Kastljós í beinni útsendingu frá Airwaves og í þættinum var líka heimsótt sýning sjötíu myndhöggvara.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Bein útsending
Siggi Gunnars stýrir lifandi þætti um dægurmenningu og tekur stöðuna á því sem við horfum á, hlustum á og tölum um. Góðir gestir, skoðanir, húmor og leikgleði í fyrirrúmi. Stjórn upptöku: Þórunn Guðjónsdóttir.
Kvikmynda- og sjónvarpsgagnrýnendur Miðstöðvarinnar, Brynja Hjálmsdóttir og Ólafur Alexander, ræða nýju Iceguys-kvikmyndina og þættina Elma í Sjónvarpi Símans premium.
Það er hátíð í bæ, tónlistarhátíðin Iceland Airwaves stendur yfir, og við kynnumst einni af hljómsveitunum sem koma þar fram, hljómsveitinni Marsibil.
Þá koma Margrét Erla Maack og Gógó Starr í spjall, meðmæli og spurningakeppni. Þau segja okkur frá Kjallarakabaretti sem sýningar eru að hefjast á í Þjóðleikhúskjallaranum.
- Dagskrárliðurinn er textaður
Norskir heimildarþættir frá 2025. Øystein „Pølsa“ Pettersen, fyrrverandi atvinnumaður á gönguskíðum, setur saman lið ungmenna með fötlun af ólíku tagi en á það sameiginlegt að hafa enga reynslu af skíðum. Markmiðið er að þjálfa hópinn á einungis tíu mánuðum til að keppa á heimsmeistaramótinu á gönguskíðum í Þrándheimi.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Bresk spennuþáttaröð um Lexie Noble sem lifir friðsælu lífi í úthverfi Edinborgar, grunlaus um að eiginmaður hennar sér um að þvo peninga fyrir alræmdan glæpaforingja. Aðalhlutverk: Morven Christie, Peter Mullan og Prasanna Puwanarajah. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Önnur þáttaröð leikinna íslenskra þátta. Karen hefur fengið sig fullsadda af Tinder og leitinni að hinni einu sönnu ást. Hún ákveður að segja skilið við stefnumótabransann og læra frekar að elska sjálfa sig en klisjan um að setja sjálfa sig í fyrsta sæti reynist flóknari en sýndist í fyrstu. Aðalhlutverk: Nanna Kristín Magnúsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson. Leikstjóri: Nanna Kristín Magnúsdóttir. Framleiðsla: Cubs Production og Vintage Pictures. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 14 ára.
Karen lætur afbrýðisemi hlaupa með sig í gönur og fer gjörsamlega fram úr sér á endanum. Það getur verið flókið fyrir sterka konu að vera lítil í sér.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Leikin þáttaröð frá 2024 byggð á samnefndri skáldsögu eftir Alexandre Dumas. Sjómaðurinn Edmond Dantè er svikinn af þremur mönnum og ranglega fangelsaður á eyju við strendur Marseille. Mörgum árum síðar tekst honum að flýja fangelsið og leitar uppi fjársjóð sem samfangi hans sagði honum frá. Hann hefur nýtt líf undir dulnefninu greifinn af Monte Cristo og er staðráðinn í að ná fram hefndum á mönnunum sem sviku hann. Aðalhlutverk: Sam Claflin, Mikkel Boe Følsgaard og Ana Girardot. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt