22:35
Fleiri pabbahelgar (3 af 6)

Önnur þáttaröð leikinna íslenskra þátta. Karen hefur fengið sig fullsadda af Tinder og leitinni að hinni einu sönnu ást. Hún ákveður að segja skilið við stefnumótabransann og læra frekar að elska sjálfa sig en klisjan um að setja sjálfa sig í fyrsta sæti reynist flóknari en sýndist í fyrstu. Aðalhlutverk: Nanna Kristín Magnúsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson. Leikstjóri: Nanna Kristín Magnúsdóttir. Framleiðsla: Cubs Production og Vintage Pictures. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 14 ára.

Karen lætur afbrýðisemi hlaupa með sig í gönur og fer gjörsamlega fram úr sér á endanum. Það getur verið flókið fyrir sterka konu að vera lítil í sér.

Aðgengilegt til: 01. nóvember 2034
Lengd: 50 mín.
Ekki við hæfi yngri en 14 áraKynlífGróft málFíkniefni
  • Dagskrárliðurinn er textaður
  • Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
  • Endursýnt
,