Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Ingvar Þóroddsson alþingismaður hefur sagt sig úr Viðreisn og gengið til liðs við Sjálfstæðisflokkinn, aðeins nokkrum vikum eftir að Jón Gnarr sagði sig úr þingflokki Viðreisnar. Áður hafði Guðmundur Ingi Kristinsson sagt sig úr Flokki fólksins. Við fjöllum um hvað þetta þýðir fyrir Viðreisn og stjórnarsamstarfið með Eiríki Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði.
Dagur íslenskrar tungu er í dag. Stjórnvöld hafa sent ákall til tölvurisans Apple um að hleypa íslensku inn í stýrikerfi fyrirtækins. En á sama tíma og stjórnvöld eru í sókn í tæknimálum óttast Háskóli Íslands um rekstrargrundvöll íslenskukennslu fyrir útlendinga, þar sem til stendur að rukka fulll skólagjöld fyrir nemendur utan EES-svæðisins. Við ræðum við Loga Einarsson, háskólaráðherra, og fáum til okkar þau Lilju Dögg Jónsdóttur, framvæmdastjóra Almannaróms, og Roberto Luigi Pagani, aðjúnkt við Háskóla Íslands.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
