
Hugsað heim
In Touch
Pólsk-íslensk heimildarmynd um pólska bæinn Stare Juchy. Um þriðjungur íbúa bæjarins hefur flust búferlum til Íslands í atvinnuleit síðan á níunda áratugnum og enginn þeirra hefur snúið aftur. Í myndinni er fjallað um samband þeirra sem eftir eru í bænum við fjölskyldu, börn og barnabörn sem búsett eru á Íslandi, söknuðinn og heimþrána. Leikstjóri: Pawel Ziemilski.