13:40
Kastljós
Bílaleigur og orkuskipti, Kengu Kuma, Svikasögur

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.

Loftslagsráðherra. Segir að bílaleigur ráði hvort þær verði í fararbroddi orkuskipta á Íslandi eða dragbítur. Bílaleigur hafi hingað til keypt hlutfallslega miklu færri rafmagnsbíla en almenningur. Eru bílaleigur að draga lappirnar eða ættu stjórnvöld að líta sér nær? Steingrímur Birgisson, forstjóri Hölds- Bílaleigu Akureyrar, og Jón Ásgeir Haukdal Þorvaldsson, teymisstjóri hjá Umhverfis- og orkustofnun, eru gestir Kastljóss.

Kengu Kuma einn þekktasti arkitekt heims, er þekktur fyrir að sækja innblástur í náttúruna og japanska byggingarhefð og leitast við að láta byggingar falla inn í umhverfi sitt fremur en að drottna yfir því. Meðal kunnustu bygginga hans er Þjóðarleikvangur Japana í Tokýó. Hann var staddur á Íslandi á dögunum. Kastljós ræddi við hann.

Lygar, framhjáhald og meðvirkni eru umfjöllunarefni leikritsins Svikasögur sem sýnt er í Borgarleikhúsinu um þessar mundir. Við kynnum okkur verkið.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 23 mín.
Leyft öllum aldurshópum
  • Dagskrárliðurinn er textaður
  • Endursýnt
,