
Spurningakeppni framhaldsskólanna. Spyrill er Logi Bergmann Eiðsson. Eggert Þór Bernharðsson er dómari og höfundur spurninga. Stigavörður er Þóra Arnórsdóttir. Andrés Indriðason annast dagskrárgerð.
Lið Menntaskólans við Hamrahlíð og Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra, Sauðárkróki keppa. Keppnin fór fram í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Keppendur í liði MH: Anna Pála Sverrisdóttir, Dagbjört Hákonardóttir og Ragnar Guðmundsson.
Keppendur í liði FN: Garðar Víðir Gunnarsson, Þorbjörn Have Jónssonog Gunnar Sigurðsson.
Logi talar við Grétar Halldór Gunnarsson, forseta nemendafélags Menntaskólans við Hamrahlíð og Hauk Skúlason, skemmtanastjóra Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra.
Atriði Menntaskólans við Hamrahlíð: Ragnheiður Gröndal syngur lagið: Í Reykjavíkurborg.
Atriði Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra: Stefán Jökull Jónsson, Gunnsteinn Sigfússon og Gísli Ólafsson flytja lagið Niður að ánni.
- Endursýnt

Danskir ferða- og matreiðsluþættir. Sætabrauðsdrengurinn og ferðalangurinn Tobias Hamann-Pedersen leggur land undir fót og kynnist bakstri og lífi víða um heim.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Sænskur heimildarþáttur um ungt par sem stígur sín fyrstu skref í foreldrahlutverkinu. Kit var ungur og einhleypur þegar hann fékk skyndilega þær fréttir að hann yrði brátt pabbi. Í þættinum fylgjumst við með Kit og Filippu fyrsta árið í lífi barnsins og sjáum hvaða áskoranir geta fylgt því að eignast barn saman þegar fólk þekkist ekki vel.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Stuttir þættir um sögurnar á bak við áhugaverðar ljósmyndir. Í hverjum þætti er fjallað um eina ljósmynd og sögu hennar – hvað var að gerast þegar myndin var tekin, hverjar voru aðstæður fólksins á ljósmyndinni og hvert er samhengið við nútímann? Leikstjóri: Þorsteinn J. Framleiðsla: Þetta líf, þetta líf.
Á ljósmyndinni sem fjallað er um sjást tvær ungar konur í leðurjökkum með gríðarmikla hárkamba dansa á Rykkrokki í Fellahelli 1987. Petra Björk Pálsdóttir segir frá tilefninu, aðdraganda þess að hún og vinkona hennar, Þórgunnur Eyfjörð Pétursdóttir, klæddust eins og pönkarar og frá pönkmenningunni á Akureyri.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt

Heilinn er undarlegt fyrirbæri. Hægt er að hafa áhrif á hann og hegðun fólks með mismunandi hætti. Sjónhverfingarmanninum og dáleiðandanum Jan Hellesøe er fylgt eftir í þessum fróðlegu dönsku þáttum.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt


Fyrsta þáttaröðin af hinni vinsælu Blæju. Blæja er sex ára hundur sem er stútfull af óstöðvandi gleði. Allir venjulegir hlutir geta orðið ævintýri hjá Blæju og fjölskyldu hennar.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Jojo er alveg að verða fimm ára. Hún er svo heppin að búa í nágrenni við ömmu sína. Saman bralla þær ýmislegt.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Litlu lundasystkinin Úna og Bubbi búa á eyjunni Lundakletti. Þau lenda sífellt í nýjum ævintýrum með vinum sínum.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Serían gerist í litríkum og súrsætum skrímsla heimi þar sem fjölbreytt skrímsli búa í sátt og sæti. Í hverjum þætti kynnumst við nýju skrímsli sem býr yfir vægast sagt sérstökum eiginleikum. Kíkjum við og sjáum hvað setur, kannski við getum kynnst þeim aðeins betur.
Tara tölvuskrímsli er pínulítil tölvuleikjaóð vera. Hún nærist á þungu lofti og svita og það besta sem hún veit eru innipúkar sem hanga í tölvuleikjum. Þegar hennar versti óvinur, ferskt loft mætir, þá flýr hún langt, langt í burt. En hvurt?
- Endursýnt

Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón: Ari Páll Karlsson, Embla Bachmann og Snæ Humadóttir. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
1. Erfiður vetur framundan í Úkraínu 2. Huppa 100 ára. Ljúkum svo þættinum á Ljósafossi á Esjunni🔦🏔️
- Dagskrárliðurinn er textaður

Danskir þættir um ungt par sem vill einfalda líf sitt og hefur búskap.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Helstu íþróttafréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Veðurfréttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður sjálfvirkt

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Sigríður Hagalín Björnsdóttir og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Eðlisfræðingurinn Halldór Fannar Guðjónsson er yfirmaður hjá tæknirisanum Nvidia og eflaust sá Íslendingur sem starfar næst miðju gervigreindargeirans. Hann kemur í Silfrið til að ræða framtíð gervigreindarinnar og Íslands í breyttum heimi.
Tæknifyrirtækin urðu fyrir áfalli á mörkuðum vestanhafs á föstudaginn, en hvaða áhrif hefur það á efnahagsmálin hér heima? Seðlabankamenn leyfðu sér bjartsýni í síðustu viku þótt vextirnir væru óbreyttir, og fjármálaráðherra situr við sinn keip og ætlar að skila hallalausum fjárlögum þrátt fyrir hraða kólnun í hagkerfinu og versnandi hagvaxtarhorfur. Og Viðreisn er í sárum eftir að hafa misst tvo þingmenn sína eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna í lok ágúst.
Gestir Silfursins eru
Halldór Fannar Guðjónsson, yfirmaður hjá Nvidia
Aðalheiður Ámundadóttir, blaðamaður hjá Gímaldinu
Björgvin Ingi Ólafsson, meðeigandi hjá Deloitte
Hörður Ægisson, ritstjóri Innherja
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, framkvæmdastjóri Félagsbústaða.
Umsjón með þættinum hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður sjálfvirkt
- Bein útsending

Heimildarþættir frá 2024 þar sem leikkonan og grínistinn Sue Perkins ferðast frá París til Istanbúl. Á leiðinni kynnist hún líflegri menningu, fallegu landslagi og áhugaverðu fólki.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Finnsk leikin þáttaröð frá 2026. Anna er lítilmagni í finnska skíðagöngulandsliðinu og er tilbúin til að fórna öllu til að komast í hóp þeirra bestu. Hún grípur tækifærið þegar henni býðst að æfa með dularfullu skíðadrottningunni Mariu. Á milli þeirra myndast eitruð samkeppni þar sem aðeins önnur þeirra getur staðið uppi sem heimsmeistari. Aðalhlutverk: Roosa Söderholm, Sannah Nedergård og Kreeta Salminen. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Áströlsk þáttaröð byggð á samnefndri skáldsögu eftir Liane Moriarty. Sophie Honeywell erfir hús á lítilli eyju í grennd við Sydney. Nokkrum áratugum áður hvarf par á eyjunni og fljótlega eftir komuna þangað áttar Sophie sig á að hún er full af leyndardómum. Aðalhlutverk: Teresa Palmer, Miranda Richardson og Danielle Macdonald. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Finnsk heimildarþáttaröð frá 2024 um lítt þekkta atburði á norðurslóðum í kalda stríðinu, meðal annars tengda valdatafli stórveldanna, njósnum og kjarnorkutilraunum. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.