Sigríður Hagalín Björnsdóttir og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Eðlisfræðingurinn Halldór Fannar Guðjónsson er yfirmaður hjá tæknirisanum Nvidia og eflaust sá Íslendingur sem starfar næst miðju gervigreindargeirans. Hann kemur í Silfrið til að ræða framtíð gervigreindarinnar og Íslands í breyttum heimi.
Tæknifyrirtækin urðu fyrir áfalli á mörkuðum vestanhafs á föstudaginn, en hvaða áhrif hefur það á efnahagsmálin hér heima? Seðlabankamenn leyfðu sér bjartsýni í síðustu viku þótt vextirnir væru óbreyttir, og fjármálaráðherra situr við sinn keip og ætlar að skila hallalausum fjárlögum þrátt fyrir hraða kólnun í hagkerfinu og versnandi hagvaxtarhorfur. Og Viðreisn er í sárum eftir að hafa misst tvo þingmenn sína eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna í lok ágúst.
Gestir Silfursins eru
Halldór Fannar Guðjónsson, yfirmaður hjá Nvidia
Aðalheiður Ámundadóttir, blaðamaður hjá Gímaldinu
Björgvin Ingi Ólafsson, meðeigandi hjá Deloitte
Hörður Ægisson, ritstjóri Innherja
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, framkvæmdastjóri Félagsbústaða.
Umsjón með þættinum hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir.
Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 45 mín.
- Dagskrárliðurinn er textaður sjálfvirkt
- Bein útsending