15:00
Sumarjazz á Jómfrúnni (2 af 3)
Anna Gréta og Silva Þórðar

Beinar útsendingar frá jazztónleikum á Jómfrúnni við Lækjargötu í Reykjavík. Í 30 ár hefur veitingastaðurinn staðið fyrir jazztónleikum á Jómfrúartorginu á hverjum laugardegi yfir sumartímann. Á meðal listamanna sem fram koma eru Tómas R. Einarsson, Silva Þórðardóttir, Anna Gréta Sigurðardóttir, Selma Björnsdóttir og Jóhanna Vigdís Arnardóttir.

Söngkonurnar Silva Þórðardóttir og Anna Gréta Sigurðardóttir bjóða upp á sérvalda standarda á Jómfrúartorginu. Hljómsveitina skipa Sigurður Flosason, Þorgrímur Jónsson og Einar Scheving.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 2 klst.
Eingöngu aðgengilegt á Íslandi
Aðgengilegt eingöngu á Íslandi.
e
Endursýnt.
Bein útsending.
,