Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Rætt um innleiðingu bókunar 35 við EES samninginn og þann ágreining sem uppi er um inntak hennar og áhrif. Rætt við aðstoðarframkvæmdastjóra Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna - World Food Program - um fjárskort stofnunarinnar. Fjallað um sjónvarpsþættina Dagbók lögreglu og rætt við aðstandendur.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Sigríður Hagalín Björnsdóttir og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, er gestur Silfursins. Um helgina stóð hún fyrir viðburðinum Tölum saman, þar sem ungt fólk ræddi hvernig samfélag það sér fyrir sér og hvernig við nýtum gervigreind til góðs. Þá átti hún fund með alþjóðlegum leiðtogum í Höfða í gær, í tilefni af því að 40 ár voru liðin frá Höfðafundinum.
Í síðari hluta þáttar erum við á vettvangi dagsins með þeim Hallgrími Helgasyni, rithöfundi, Ásthildi Sturludóttur, fyrrverandi bæjarstjóra, og Höllu Hrund Logadóttur, alþingismanni.
- Dagskrárliðurinn er textaður sjálfvirkt
- Endursýnt
Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1998. Spyrill: Davíð Þór Jónsson. Dómari og spurningahöfundur: Gunnsteinn Ólafsson. Stigavörður: Katrín Jakobsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Í þessum þætti mætast lið Fjölbrautaskóla Suðurlands og Bændaskólans á Hvanneyri. Lið Fjölbrautaskólans á Suðurlandi skipa Pétur Runólfsson, Herdís Sigurgrímsdóttir og Eyjólfur Þorkelsson. Lið Bændaskólans á Hvanneyri skipa Guðni Ragnarsson, Sigurður Erlingsson og Torfi H. Björnsson.
- Endursýnt
Guðjón Friðriksson og Egill Helgason leiða áhorfendur um söguslóðir í Kaupmannahöfn. Borgin við Sundið var um aldaraðir hin eiginlega höfuðborg Íslands. Þangað leituðu Íslendingar til náms, starfa og fræðiiðkana, en Kaupmannahöfn var líka miðstöð verslunar Íslendinga. Við kynnumst Íslandskaupmönnum, stúdentum, sérvitringum, skáldum og stjórnmálamönnum, en líka fólki sem fór til Hafnar að afla sér iðnmenntunar eða einfaldlega til að freista gæfunnar. Víða í borginni leynast sögur af Íslendingum. Dagskrárgerð: Ragnheiður Thorsteinsson.
Farið er á slóðir Íslandskaupmanna í Kristjánshöfn og við Norðurbryggju. Sumir þeirra voru vellauðugir og valdamiklir menn, aðrir eiga ættboga á Íslandi. Egill og Guðjón rifja upp siglingar Gullfoss til Kaupmannahafnar og skoða byggingar sem tengjast dönskum óvinum Jóns Arasonar.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Sænsk þáttaröð frá 2023. Marie Olsson Nylander heldur í ævintýraferð með systur sinni þar sem þær ferðast frá Svíþjóð niður til Sikileyjar. Á leiðinni stoppa þær á ýmsum stöðum í leit að forngripum fyrir heimili Marie á Sikiley.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Íslenskir viðtalsþættir þar sem skyggnst er inn í líf fólks sem nýtur eftirlaunaáranna á aðdáunarverðan og jákvæðan hátt. Í hverjum þætti fáum við innsýn í líf einnar manneskju, heyrum sögu hennar, lífssýn og lærdóm sem hún hefur dregið af lífinu, auk þess sem við ræðum þær áskoranir sem fylgja því að eldast. Dagskrárgerð: Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir. Framleiðsla: Elín Sveinsdóttir.
Guðrún Fjeldsted hefur keppt í hestaíþróttum í yfir 60 ár. Hún er frumkvöðull í reiðþjálfun fatlaðra hér á landi og rekur reiðskóla á Ölvaldsstöðum í Borgarfirði. Þess á milli smalar hún sauðfé og veiðir á flugu enda ættuð frá bænum Ferjukoti við Hvítá sem hefur sögulegt gildi í íslenskri laxveiðisögu. Líf Guðrúnar hefur alla tíð verið samofið íslenskri náttúru en hún unir sér best í sveitinni innan um íslenska hestinn á sögusviði Íslendingasagnanna.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt

Vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón: Ari Páll Karlsson, Embla Bachmann og Snæ Humadóttir. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
1. Samningar náðust á síðustu stundu í kjaramálum 2. Íslendingar eignast sinn annan Nóbelsverðlaunahafa í bókmenntum. Ljúkum þættinum á myndum úr 10 ára afmæli Leiklistarskóla Borgarleikhússins🎉
- Dagskrárliðurinn er textaður
Þættir um íslenska dægurtónlist þar sem tónlistarmenn koma í stutt viðtöl og flytja tónlist. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir. Dagskrárgerð: Guðmundur Atli Pétursson.
Fram koma Kári Egils, Flott, Spacestation, Gosi og Superserious.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Atvinnuvegaráðherra hyggst leggja gjald á fjölsótta ferðamannastaði í eigu ríkisins. Heimamenn eru uggandi yfir áformunum. Á sama tíma er deilt um laxeldi í Seyðisfirði en ekkert bólar á frumvarpi um lagareldi. Hanna Katrín Friðrikson er gestur Kastljóss í kvöld.
Christiane Amanpour, aðalfréttaskýrandi CNN í alþjóðamálum, var gestur á árlegri friðarráðstefnu í Höfða. Við ræðum við hana um alþjóðamálin og stöðu fjölmiðla nú á tímum.
Leikrtið Fasteignamartröðin var frumsýnt hjá Leikfélagi Akureyrar á dögunum. Við litum við á æfingu.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Bein útsending
Kveikur er fréttaskýringaþáttur með áherslu á rannsóknarblaðamennsku. Ritstjórn og dagskrárgerð: Ragnhildur Þrastardóttir, Arnar Þórisson, Árni Þór Theodórsson, Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir, Hákon Pálsson, Helgi Seljan, Ingvar Haukur Guðmundsson, Jóhann Bjarni Kolbeinsson og Sunna Karen Sigurþórsdóttir.
Hver ræður því hvað er í glasinu þínu? Keppinautar Ölgerðarinnar segjast útilokaðir frá viðskiptum við bari, veitingastaði, útihátíðir og jafnvel nemendafélög því samningar við Ölgerðina standi í veginum. Kveikur skoðar samninga og samskipti sem varpa ljósi á það hvernig einn risi getur mótað heilan markað. Ölgerðin hafnar því að útiloka keppinauta.
- Dagskrárliðurinn er textaður
Heimildarþættir þar sem saga íslenskrar hönnunar er rakin, allt frá fyrstu brautryðjendum til yngri kynslóða. Í hverjum þætti er sjónum beint að áhrifamiklum hönnuðum og verkum þeirra, samhengi þeirra við samtímann og arfleifð. Dagskrárgerð: Jakob Halldórsson.
Í Fléttu hönnunarstúdíói er efni og hönnun endurhugsuð, með innsýn frá Hönnunarsafninu og Hönnunarmiðstöð Íslands.
- Dagskrárliðurinn er textaður
Velsk spennuþáttaröð frá 2025. Blaðakona rannsakar banvæna sprengingu sem varð við vatnsból árið 1995. Maður sem dæmdur var fyrir morð er nú laus úr fangelsi 30 árum seinna og heldur enn fram sakleysi sínu. Heimkoma hans ýfir upp gömul sár í samfélaginu og leyndarmál fortíðar leita upp á yfirborðið. Aðalhlutverk: Sian Reese-Williams, Mark Lewis Jones og Nia Roberts. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Þriðja þáttaröð þessara vinsælu íslensku spennuþátta. Rannsóknarlögreglumaðurinn Andri Ólafsson er kominn í rólegra starf innan lögreglunnar og hættur að rannsaka morðmál. En þegar morð er framið á landi sértrúarsafnaðar norður í landi gera draugar fortíðar óvænt vart við sig og Andri neyðist til að horfast í augu við þann sem hann óttast mest - sjálfan sig. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Andri og Trausti komast að raunverulegum fyrirætlunum danska vélhjólagengisins en það verður til þess að torvelda þeim rannsókn á morðinu, þar sem þeir þurfa að gæta að rannsóknarhagsmunum annarrar deildar innan lögreglunnar.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Sannsögulegir breskir dramaþættir frá 2023. Árið 1956 flyst Roberts-fjölskyldan frá Bretlandi til Ástralíu í leit að betra lífi. Erfitt reynist að fóta sig í nýju umhverfi þar sem óvæntar áskoranir leynast á hverju strái. Aðalhlutverk: Warren Brown, Faye Marsay og Hattie Hook. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt