Spurningakeppni sveitarfélaga frá 2018. Þátttakendur að þessu sinni eru lið frá þeim sveitarfélögum sem komust í úrslit árin á undan eða hafa oftast komist nálægt því. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Sólmundur Hólm. Spurningahöfundur og dómari er Jón Svanur Jóhannsson. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.
Lið Reykjavíkur: Óttarr Proppé, Auður Tinna Aðalbjarnardóttir, Eiríkur Hjálmarsson.
Lið Flateyrar: Teitur Björn Einarsson, Runólfur Ágústsson, Ingibjörg Guðmundsdóttir.
Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Baldvin Þór Bergsson.
Sænsk heimildarmynd frá 2021. Sænska söngkonan og tónskáldið Ana Diaz, sem hefur ítrekað farið í kulnun, segir frá því hvernig er að koma til baka eftir að hafa keyrt harkalega á vegg. Er það yfirleitt mögulegt og hvernig er hægt að koma í veg fyrir að lenda aftur í því sama?

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Fyrir nokkrum árum var krabbamein fjarlægur sjúkdómur í huga Hörpu Bjarkar Hilmarsdóttir en í dag er hann stór hluti af lífi hennar. Hún hefur kynnst honum sem barn foreldra með krabbamein, sem syrgjandi og aðstandandi og sem foreldri barns með krabbamein. Við heyrum sögu Hörpu Bjarkar í Kastljósi kvöldsins.
Hjón sem stunda svokallaðan auðgandi landbúnað segjast njóta meiri tíma með dýrunum en áður. Markmiðið er að vinna með náttúrunni og jarðveginum og skilja eftir betra land en þau tóku við.
Ný bresk dramaþáttaröð byggð á samnefndri skáldsögu eftir Barböru Taylor Bradford. Emma Hart starfar sem húshjálp í Yorkshire í byrjun 20. aldar. Með mikilli seiglu vinnur hún sig upp úr fátækt og byggir upp alþjóðlegt viðskiptastórveldi. Aðalhlutverk: Jessica Reynolds, Emmett J. Scanlan og Lydia Leonard. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Breskir spennuþættir um örvæntingafulla móður sem lifir áhættusömu lífi sem skartgripaþjófur á sama tíma og hún reynir að ná dóttur sinni aftur frá félagsþjónustunni og byggja örugga framtíð fyrir þær báðar. Aðalhlutverk: Sophie Turner, Frank Dillane og Mia Millichamp-Long. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Sænskur heimildarþáttur um ungt par sem stígur sín fyrstu skref í foreldrahlutverkinu. Kit var ungur og einhleypur þegar hann fékk skyndilega þær fréttir að hann yrði brátt pabbi. Í þættinum fylgjumst við með Kit og Filippu fyrsta árið í lífi barnsins og sjáum hvaða áskoranir geta fylgt því að eignast barn saman þegar fólk þekkist ekki vel.