Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1991. Spyrill: Stefán Jón Hafstein. Dómari: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir. Stigavörður Oddný Eir Ævarsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Að þessu sinni mætast lið Menntaskólans við Hamrahlíð og Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Lið Menntaskólans við Hamrahlíð skipa Snorri Einarsson, Tryggvi Helgason og Jón Yngvi Jóhannsson. Lið Fjölbrautaskólans í Breiðholti skipa Þráinn Friðriksson, Rúnar Örn Marinósson og Sigurjón Jónsson.
Ebba Guðný sýnir áhorfendum hversu auðvelt það getur verið að elda hollan og næringarríkan mat úr góðu hráefni. Matreiðsluþáttur fyrir alla fjölskylduna með skemmtilegu fræðsluívafi. Dagskrárgerð: Sævar Sigurðsson. Framleiðandi: Anna Vigdís Gísladóttir fyrir Saga Film.
Í þessum þætti útbýr Ebba Guðný grænan morgundjús, bolognese með lambahakki, súkkulaði mjólkurhristing og möndlumjólkurhristing með mangó og bláberjum. Að snæðingi situr fjölskylda Ebbu, þau Hafþór Hafliðason, Hanna Hulda Hafþórsdóttir og Hafliði Hafþórsson auk Ebbu Guðnýjar.
Fjögurra þátta röð um þá sem enn stunda hefðbundinn búskap við innanvert Ísafjarðardjúp. Saga búskapar er rakin og spáð í framtíðina á einlægan og raunsæjan hátt. Tónlistina samdi Mugison en Þóra Arnórsdóttir og Ásdís Ólafsdóttir önnuðust dagskrárgerð.

Ævintýri Tulipop er skemmtileg þáttaröð um litríkan vinahóp sem býr á töfraeyjunni Tulipop. Á hverjum degi gerast ný ævintýri á eyjunni sem sem geta haft áhrifaríkar afleiðingar í för með sér en vináttuböndin reynast ævinlega traust.
Þegar Freddi mætir grútskítugur í lautarferð vinanna í Leyniskóginum ákveður Gló að baða hann í laug skammt frá. En á meðan Gló skrúbbar Fredda hátt og lágt hverfur dýrmæta skikkjan hennar. Gló er alveg eyðilögð og finnst hún vera algerlega hjálparvana án hennar. Freddi fer með henni að leita að skikkjunni og Gló kemst að því að hún getur nú ýmislegt þó skikkjuna vanti.

Jasmín og Jómbi eru góðir vinir sem elska tónlist. Saman njóta þau tónanna sem óma um Hljómbæ.

Rán er ung og hress stelpa sem styttir sér stundir með ímynduðu vinkonu sinni. En hún Rún virðist raunverulegri en flestir.

Fimmta þáttaröð þessara einlægu og skemmtilegu þátta þar sem fólk með þroskahömlun skoðar málefni líðandi stundar með sínum augum og spyr spurninga á sinn einstaka hátt. Dagskrárgerð: Elín Sveinsdóttir.

Íslensk tónlistarmyndbönd.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Dæmd í 12 ára fangelsi

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.
Heimildarþáttaröð þar sem sveppir á Íslandi eru skoðaðir frá sjónarhorni vísinda, menningar, fagurfræði og sjálfbærni. Dagskrárgerð: Anna Þóra Steinþórsdóttir. Umsjón: Erna Kanema Mashinkila.
Fjallað er um sveppi sem matvæli og skoðað hvernig nýta má bæði villta og ræktaða sveppi til að útbúa dýrindis rétti. Svepparækt á Flúðum er skoðuð og litið á tilraunir með útiræktun á sveppum. Michelinkokkurinn Þráinn Freyr Vigfússon sýnir hvernig hann nýtir sveppi í sælkerarétti á veitingastöðunum Sumac og Óx. Að lokum er fylgst með lunknu sveppatínslufólki í sveppamó í íslenskum skógum.

Norskir heimildarþættir frá 2024. Hópur Norðmanna stefnir á að komast með nýstofnað landslið sitt í fótbolta á Heimsleika dvergvaxinna. Markmið liðsmanna er að vinna bug á fordómum í garð þeirra og sýna að hæðin sé engin hindrun þegar kemur að íþróttaiðkun. Undir stjórn þjálfarans Ole Martin Årst, fyrrverandi atvinnumanns í fótbolta, stefnir liðið á toppinn.

Sænsk heimildarmynd frá 2024 um heimafæðingar. Í myndinni er rætt við mæður, ljósmæður og vísindamenn um kosti og galla þess að fæða heima hjá sér og fylgst er með hreyfingu sem vinnur við að auðvelda konum í Svíþjóð að velja heimafæðingu.

Lögreglumaðurinn Andri Ólafsson snýr aftur í annarri þáttaröð þessara vinsælu íslensku spennuþátta. Reynt er að ráða iðnaðarráðherra af dögum á Austurvelli og Andra er falið að stýra rannsókn málsins sem leiðir hann á kunnugar slóðir norður á landi. Ýmis leyndarmál leynast í sveitunum í kring og þegar starfsmaður jarðvarmavirkjunar finnst myrtur er ljóst að málið er umfangsmeira en það virtist í fyrstu. Leikstjórn: Baltasar Kormákur, Börkur Sigþórsson, Ugla Hauksdóttir og Óskar Þór Axelsson. Aðalhlutverk: Ólafur Darri Ólafsson, Ilmur Kristjánsdóttir og Ingvar E. Sigurðsson. Framleiðsla: RVK Studios. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Andri hefur haft veður af því að þjóðernishópurinn Hamar Þórs sé með eitthvað í bígerð en hvað það er veit hann ekki. Einn þeirra er á flótta undan yfirvöldum grunaður um aðild að hrottalegu morði. Víkingasveitin er kölluð út til að hafa upp á honum en þjóðernissinnarnir eru skipulagðari en lögreglan bjóst við.
Fjórða og síðasta þáttaröðin um ítölsku vinkonurnar Elenu og Lilu. Þættirnir eru byggðir á Napólí-sögum rithöfundarins Elenu Ferrante, sem farið hafa sigurför um heiminn. Vinkonurnar eru á fullorðinsaldri og lifa ólíku lífi en vináttan heldur enn. Aðalhlutverk: Alba Rohrwacher, Irene Maiorino og Fabrizio Gifuni. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Leiknir norskir þættir byggðir á sönnum atburðum. Vinirnir Benjamin og Elias eru 15 ára og horfa spenntir til framtíðar. Einn örlagaríkan janúardag árið 2001 breytir skelfilegur atburður öllu. Aðalhlutverk: Sam Ashraf, Emil Stenseth, Torbjørn Aamodt og Lee Boardman. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Dæmd í 12 ára fangelsi