Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Kjarasamningar SA og VR halda eftir að samkomulag náðist á elleftu stundu. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, og Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, eru gestir Kastljóss.
Eldisfyrirtækið Kaldvík hefur fengið leyfi fyrir laxeldi í Seyðisfirði, þrátt fyrir hávær mótmæli heimamanna og náttúruverndarsamtaka. Í deilunni takast á sjónarmið auðlindanýtingar og umhverfisverndar en málið reynir ekki síður á samheldni í Múlaþingi, stóru sveitarfélagi með ólíka hagsmuni og skiptar skoðanir. Kastljós heimsótti Seyðisfjörð.
Kanadísk-íslenski rithöfundurinn Anne Carson hlýtur Nóbelsverðlaunin í bókmenntum í ár. Fríða Björk Ingvarsdóttir, fyrrverandi rektor LHÍ og vinkona Anne Carson, ræðir skáldið og áhrif hennar í Kastljósi.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Siggi Gunnars stýrir lifandi þætti um dægurmenningu og tekur stöðuna á því sem við horfum á, hlustum á og tölum um. Góðir gestir, skoðanir, húmor og leikgleði í fyrirrúmi. Stjórn upptöku: Þórunn Guðjónsdóttir.
Friðrik Ómar og Elísabet Ormslev ræða menningarfyrirbærið Celine Dion í þættinum. Við spyrjum okkur einnig hvort rokkið sé dautt. Hljómsveitin Hasar kveður allar kenningar um slíkt í kútinn. Svo eru það leikaravinirnir Kjartan Darri og Oddur Júlíusson sem koma í „Risastóru dægurmenningarspurningarkeppnina“ undir lok þáttar.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Breskir gamanþættir frá 2025 um hina óviðjafnanlegu Jessop-fjölskyldu. Daglegt líf þeirra er heldur óreiðukennt og yngsti sonurinn Sam festir það allt á filmu. Aðalhlutverk: Katherine Parkinson, Jim Howick og Freya Parks. Handritshöfundur: Tom Basden.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Gísli Marteinn tekur á móti góðum gestum á föstudagskvöldum í vetur og fer með þeim yfir helstu atburði vikunnar í stjórnmálum, menningu og mannlífi. Persónur og leikendur koma í spjall og brakandi fersk tónlistaratriði koma landsmönnum í helgarstemninguna. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.
Gestir þáttarins eru Ari Eldjárn, Páll Magnússon og Vera Illugadóttir.
Berglind Festival færir landsmönnum fréttir Vikunnar og Salka Gústafs stendur fyrir söfnun.
Saxafónsveit Tuma Torfasonar flytur nokkur af helstu stefjum sjónvarpssögunnar.
Tatjana frumflytur lagið Loforð í lok þáttar.
- Bein útsending
Gamansamir breskir sakamálaþættir frá 2025. Fornleifafræðingurinn Judith Potts, sem sest er í helgan stein, er sannfærð um að hrottalegt morð hafi verið framið í annars friðsæla smábænum Marlow. Þegar lögreglan tekur hana ekki trúanlega gengur hún sjálf í verkið og hefst handa við rannsókn málsins með aðstoð vinkvenna sinna, hundagöngukonunnar Suzie og prestfrúarinnar Becks. Þættirnir eru byggðir á samnefndri skáldsögu eftir Robert Thorogood. Aðalhlutverk: Samantha Bond, Jo Martin og Cara Horgan.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi

Bresk kvikmynd frá 2007 í leikstjórn Shekhar Kapur. Cate Blanchett fer með hlutverk Elísabetar Englandsdrottningar á hátindi valdatíðar sinnar undir lok 16. aldar. Drottningin stendur frammi fyrir sviksamlegum launráðum og yfirvofandi innrás spænska flotans á sama tíma og hún tekst á við ástarsorg og flókið tilfinningalíf. Aðalhlutverk: Cate Blanchett, Clive Owen og Geoffrey Rush. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Breskir sakamálaþættir frá 2021. Reyndur lögreglumaður og unglingsstúlka hrapa til bana fram af þaki háhýsis í London. Rannsóknarlögreglukonan Sarah Collins er fengin til að stýra rannsókn málsins og fljótlega flækist hún inn í flókinn vef spillingar og leyndarmála innan lögreglunnar. Þættirnir eru byggðir á glæpasögum eftir Kate London, fyrrum lögreglukonu í London. Aðalhlutverk: Gemma Whelan, Tahirah Sharif og Emmett J. Scanlan. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Önnur sería af Silfruskógi, sem er bresk sjónvarpsþáttaröð úr heimi vísindaskáldskapar fyrir unglinga. Lous, Meg, Glen og Kaz uppgötva að hópurinn þeirra er bara einn þeirra fjögurra sem taka þátt í leiknum um að bjarga heiminum.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Önnur þáttaröð af Eilífu drama. Hvað gerist þegar besta vinkonan byrjar að hanga með einhverjum öðrum? Saga um vináttu sem rofnar og breytist. Þáttaröðin er á sænsku með íslenskum texta.
Olivia þorir loksins að setja Alexu mörk og þá opnast henni nýr heimur.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Fjórir efnilegir knattspyrnuiðkendur. Einn draumur. Ekkert er sjálfgefið. Sumir berjast fyrir því að falla inn í hópinn, aðrir fyrir því að valda ekki vonbrigðum. Serían er á norsku með íslenskum texta.
Leon reynir að passa inn í heim Amunds.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Þrjár leiknar stuttmyndir, skrifaðar af ungum höfundum á aldrinum 7-12 ára. Myndirnar voru framleiddar í tengslum við verkefnið Sögur hjá KrakkaRÚV. Handritin að stuttmyndunum þremur, Einhyrningurinn og kanínan, Óvæntar fréttir og Hvað er í gangi? voru valin í handritasamkeppni Sagna 2025. Leikstjórn og framleiðsla: Rosalie Rut Sigrúnardóttir
Vigdís er ein heima í fyrsta skipti og það fer af stað fjörug atburðarás sem hún nær ekki að stöðva.
Handrit: Elísabet Sara Kolsöe, Karítas Magnúsdóttir og Hlynur Axel Bjarkason
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt