21:45
Ófærð II (2 af 10)

Lögreglumaðurinn Andri Ólafsson snýr aftur í annarri þáttaröð þessara vinsælu íslensku spennuþátta. Reynt er að ráða iðnaðarráðherra af dögum á Austurvelli og Andra er falið að stýra rannsókn málsins sem leiðir hann á kunnugar slóðir norður á landi. Ýmis leyndarmál leynast í sveitunum í kring og þegar starfsmaður jarðvarmavirkjunar finnst myrtur er ljóst að málið er umfangsmeira en það virtist í fyrstu. Leikstjórn: Baltasar Kormákur, Börkur Sigþórsson, Ugla Hauksdóttir og Óskar Þór Axelsson. Aðalhlutverk: Ólafur Darri Ólafsson, Ilmur Kristjánsdóttir og Ingvar E. Sigurðsson. Framleiðsla: RVK Studios. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Á einum sólarhring hafa tveir menn úr sömu fjölskyldu látist með voveiflegum hætti. Andri og Hinrika beina sjónum sínum að hópi þjóðernissinna sem kallar sig Hamar Þórs. Í ljós kemur að liðsmenn hópsins hafa verið að mótmæla við virkjunina.

Er aðgengilegt til 29. september 2026.
Lengd: 48 mín.
12
Ekki við hæfi yngri en 12 ára.
Eingöngu aðgengilegt á Íslandi
Aðgengilegt eingöngu á Íslandi.
e
Endursýnt.
Dagskrárliðurinn er textaður.
,