21:30
Vitjanir (7 af 8)
7. Í bláum skugga

Íslensk, leikin þáttaröð um bráðalækninn Kristínu sem flytur með unglingsdóttur sinni heim til foreldra sinna í lítið sjávarþorp eftir framhjáhald eiginmannsins. Kristín, sem er raunsæ og jarðbundin, kemst fljótt að því að hún fer langt út fyrir þægindarammann í samskiptum við miðilinn móður sína og neyðist til að horfast í augu við drauga fortíðar. Leikstjóri: Eva Sigurðardóttir. Aðalhlutverk: Sara Dögg Ásgeirsdóttir, Helga E. Jónsdóttir, Katla Njálsdóttir og Jói Jóhannsson. Atriði í þáttunum eru ekki við hæfi ungra barna.

Lilja verður sífellt afundnari við Kristínu og á endanum springur allt í loft upp á milli þeirra. Hugrún áttar sig á því að hún getur ekki veitt móður sinni þá umönnun sem hún þarf.

Er aðgengilegt til 11. september 2027.
Lengd: 51 mín.
Eingöngu aðgengilegt á Íslandi
Aðgengilegt eingöngu á Íslandi.
e
Endursýnt.
Dagskrárliðurinn er textaður.
,