
Teiknimyndaþættir fyrir börn byggðir á samnefndri breskri barnabók frá árinu 1994 eftir Sam McBratney, með myndskreytingum eftir Anitu Jeram. Bókin hefur verið gefin út á yfir 53 tungumálum og selst í yfir 28 milljónum eintaka.
Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Flóra er níu ára og finnur gat í limgerðinu úti í garði. Hún skríður í gegn og er skyndilega stödd í skóginum endalausa – galdraheimi þar sem allt getur gerst. Þar ráfa um skrítnar og stórkostlegar verur. Þær lenda í ýmiss konar vandræðum og enginn getur hjálpað þeim – nema kannski Flóra sjálf?
Danni tígur er þáttaröð sem kennir börnum að túlka tilfinningar sínar. Hvenær upplifa þau sorg, reiði og hvenær eru þau þakklát. Danni notar tónlist og syngur um það sem hann upplifir sem leyfir börnum að tileinka sér það frekar. Þátturinn er ætlaður leikskólabörnum og kennir tilfinningagreind og sjálfsvirðingu sem og virðingu fyrir öðrum.

Jojo er alveg að verða fimm ára. Hún er svo heppin að búa í nágrenni við ömmu sína. Saman bralla þær ýmislegt

Huggulegir þættir þar sem snjómaðurinn les úr sínum uppáhaldsbókum fyrir litlu mýsnar í bókabúðinni.

Friðþjófur forvitni er forvitinn og yndislegur api sem getur oft á tíðum verið full ævintýragjarn. Fylgjumst með ævintýrum hans og mannsins með gula hattinn eiganda hans.

Töfratú er fantasíuland dásamlegra álfa og hafmeyja þar sem raunveruleg viðfangsefni á borð við systkinaerjur, sanngirni og sjálfstraust eru könnuð nánar.

Jasmín og Jómbi eru góðir vinir sem elska tónlist og njóta tónanna sem óma um Hljómbæ.

Útsendingar frá Vetrarólympíumóti fatlaðra í Mílanó og Cortina á Ítalíu.
Keppni í skíðagöngu á Vetrarólympíumóti fatlaðra í Mílanó og Cortina á Ítalíu.
Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk í bæjum og sveitum og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Þórdís Claessen, Hafsteinn Vilhelmsson, Amanda Guðrún Bjarnadóttir og Andri Freyr Viðarsson. Dagskrárgerð: Jóhannes Jónsson, Hjalti Stefánsson, Benedikt Nikulás Anes Ketilsson, Björgvin Kolbeinsson og Adelina Antal.
Í Landanum í kvöld hittum við ungan mann sem ferðast um heiminn og vinnur fyrir fæði og húsnæði með gítarspili og söng. Við heimsækjum rannsóknarstofu Matís í Neskaupsstað, við hittum ítalskan gelatogerðarmann á Ísafirði og við kynnumst ljósmyndara sem er með Parkinson sjúkdóminn en neitar að leggja frá sér linsuna.

Leikir í bikarkeppninni í blaki.
Leikur HK og KA í bikarúrslitum kvenna í blaki

Leikir í bikarkeppninni í blaki.
Leikur Aftureldingar og Hamars í bikarúrslitum karla í blaki

Brot úr tónlistarþáttunum Tónatal í umsjón Matthíasar Más Magnússonar.
Unnsteinn Manuel flytur lagið Er þetta ást? Með honum er Sveinbjörn Thorarensen. Lagið er eftir Pál Óskar Hjálmtýsson og Brynhildi Björnsdóttur.

Jöklarnir hafa hopað og allar þjóðsagnaverurnar úr gömlu bókunum eru komnar fram í dagsljósið. Ormhildur og Albert gamli leggja af stað í leiðangur með Guðrúnu og Brynhildi. Þau ætla að fremja galdraseið til að kveða vættirnar aftur inn í jöklana. Allt fer á hliðina þegar Albert er tekinn höndum og hópurinn hrapar í fjallinu. Á ferðalaginu uppgötvar Ormhildur að hún býr yfir leyndum hæfileika og kemst að því að töfraverurnar eru ekki allar þar sem þær eru séðar.
Urðarkettlingurinn sem Ormhildur bjargaði kemur aftur til hennar og vill ekki fara frá henni. Ormhildur fellur og rotast og þegar hún rankar við sér kemst hún naumlega undan Álfi og Rauð. Mamma urðarkettlinganna ræðst á þorpið en Ormhildur kemur á sáttum milli hennar og mannfólksins. Í þakklætisskyni ber hún Ormhildi og félaga hennar á bakinu að eyðilandinu.
Velkomin til Eplabæjar. Eplabær er svo daufur og óspennandi að hann hefur verið tekinn út af landakortum. En ef betur er að gáð fela jafnvel mestu leiðindin í sér ævintýri. Stundum getur ómerkilegasti staðurinn orðið vettvangur stórkostlegra uppátækja – ef ímyndunaraflið fær að ráða.

Þáttaröð í sex hlutum þar sem nafnarnir og sjónvarpsmennirnir Andri Freyr Viðarsson úr þáttunum Andri á flandri og Andri Freyr Hilmarsson úr Með okkar augum leggja land undir fót og er ferðinni heitið til Bretlandseyja. Þar freista þeir þess að hitta átrúnaðargoð Andra Freys Hilmarssonar, Mr. Bean. Á meðan Andri Freyr Viðarsson reynir að komast í samband við leikarann Rowan Atkinson nota nafnarnir tímann og skoða sig um á Bretlandseyjum.
Í Wales ræða nafnarnir hvernig það hafi verið að búa í kastala auk þess sem þeirdrekka alvöru te, skoða gröf sögufrægs veiðihunds, háma í sig fisk og franskar og heimsækja bæinn Llanfairpwllgwyngyllgogerychwyrndrobwllllantysiliogogogoch.

Lottó-útdráttur vikunnar.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Ný íslensk heimildarþáttaröð í umsjón Ara Eldjárns um íslenskar kvikmyndir. Í hverjum þætti er ein sígild kvikmynd tekin fyrir. Skyggnst er á bak við tjöldin og áður óséð myndefni birt. Rætt er við leikstjóra, handritshöfunda, framleiðendur, leikara, búninga- og leikmyndahönnuði, kvikmyndastjóra, klippara og fleira fagfólk, sem ljóstra upp ýmsum leyndarmálum frá gerð myndanna.
Fjallað er um gerð víkingamyndarinnar Hrafninn flýgur frá árinu 1984. Meðal þeirra sem fram koma eru Edda Andrésdóttir, Þórhildur Þorleifsdóttir, Halldór Þorgeirsson, Karl Júlíusson, Gunnar Baldursson, Egill Ólafsson, Jakob Þór Einarsson, Edda Björgvinsdóttir og Hrafn Gunnlaugsson.

Kanadísk kvikmynd frá 2020 í leikstjórn Philippe Falardeau. Myndin er byggð á æviminningum rithöfundarins Joönnu Rakoff. Árið 1965 ræður Joanna sig til starfa hjá umboðsskrifstofu í New York þar sem hún fær það hlutverk að svara aðdáandabréfum rithöfundarins J. D. Salinger. Aðalhlutverk: Margaret Qualley, Sigourney Weaver og Douglas Booth.

Íslensk spennumynd frá 1984 í leikstjórn Hrafns Gunnlaugssonar. Ungur drengur sér foreldra sína myrta og systur sinni rænt. Sem fullorðinn maður leitar hann hefnda og ætlar síðan að grafa stríðsöxina. Áformin ganga hins vegar ekki eftir, þar sem ungur systursonur hans verður vitni að hefndunum. Aðalhlutverk: Jakob Þór Einarsson, Egill Ólafsson, Helgi Skúlason, Flosi Ólafsson, Edda Björgvinsdóttir, Gottskálk D. Sigurðarson og Sveinn M. Eiðsson. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Breskir spennuþættir byggðir á samnefndri skáldsögu Anthonys Horowitz. Ritstjórinn Susan Ryeland fær í hendurnar handrit að nýjustu skáldsögu glæpasagnahöfundarins Alans Conway. Þegar hún kemst að því að lokakaflann vantar í handritið hefur hún leit að týndu blaðsíðunum og flækist í leiðinni óvænt í vef lyga og leyndarmála. Aðalhlutverk: Lesley Manville, Conleth Hill og Tim McMullan.

Útsendingar frá Vetrarólympíumóti fatlaðra í Mílanó og Cortina á Ítalíu.
Keppni í svigi kvenna á Vetrarólympíumóti fatlaðra í Mílanó og Cortina á Ítalíu.

Útsendingar frá Vetrarólympíumóti fatlaðra í Mílanó og Cortina á Ítalíu.
Úrslitaleikur í hjólastólakrullu á Vetrarólympíumóti fatlaðra í Mílanó og Cortina á Ítalíu.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.