Jöklarnir hafa hopað og allar þjóðsagnaverurnar úr gömlu bókunum eru komnar fram í dagsljósið. Ormhildur og Albert gamli leggja af stað í leiðangur með Guðrúnu og Brynhildi. Þau ætla að fremja galdraseið til að kveða vættirnar aftur inn í jöklana. Allt fer á hliðina þegar Albert er tekinn höndum og hópurinn hrapar í fjallinu. Á ferðalaginu uppgötvar Ormhildur að hún býr yfir leyndum hæfileika og kemst að því að töfraverurnar eru ekki allar þar sem þær eru séðar.
Urðarkettlingurinn sem Ormhildur bjargaði kemur aftur til hennar og vill ekki fara frá henni. Ormhildur fellur og rotast og þegar hún rankar við sér kemst hún naumlega undan Álfi og Rauð. Mamma urðarkettlinganna ræðst á þorpið en Ormhildur kemur á sáttum milli hennar og mannfólksins. Í þakklætisskyni ber hún Ormhildi og félaga hennar á bakinu að eyðilandinu.
