
Gamansamir þættir um strútapabbann Edda og áttburana hans. Eddi strútapabbi er fullkomnunarsinni og reynir að gera allt sem í hans valdi stendur til að vernda áttburana sína. Hann á fullt í fangi með það, enda eru ævintýrin hjá stórri fjölskyldu mörg og ímyndunaraflið mikið.
Eddi strútapabbi er skelfingu lostinn yfir því að dóttir hans vilji smakka sterku sósuna sem hann er með! Hann verður að passa að hún nái ekki sósunni!
Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Jöklarnir hafa hopað og allar þjóðsagnaverurnar úr gömlu bókunum eru komnar fram í dagsljósið. Ormhildur og Albert gamli leggja af stað í leiðangur með Guðrúnu og Brynhildi. Þau ætla að fremja galdraseið til að kveða vættirnar aftur inn í jöklana. Allt fer á hliðina þegar Albert er tekinn höndum og hópurinn hrapar í fjallinu. Á ferðalaginu uppgötvar Ormhildur að hún býr yfir leyndum hæfileika og kemst að því að töfraverurnar eru ekki allar þar sem þær eru séðar.
Ormhildur þrammar í burtu, reið við Albert yfir svikunum. Hrafnakonungurinn hneppir hin í álög sem skemmtikrafta. Endurbættur verndargripur Hallgríms sýnir honum Vakur sem er orðinn sólkonungur á Breiðholtseyju og stjórnar íbúunum. Álfur finnur veggteppi sem spáir fyrir um örlög Ormhildar og Guðrún nýtir töfra stolnu galdrakolanna. Förin verður sífellt hættulegri.
Heimildarþættir þar sem Halla Ólafsdóttir skoðar hvers vegna fólk flytur landshorna og heimshorna á milli - og hvað það er sem fólk kallar „heima“.
Íris Birgisdóttir hefur staðið úti í rokinu í fimm ár. Hún vinnur að því að gera upp Framnes, hús úr sem var í eigu fjölskyldunnar, og leyfir landinu um leið að næra sig á meðan hún vinnur úr mikilli sorg. Við hittum hana svo aftur á tímamótum – þegar hún og dóttir hennar Anna eru að flytja inn. Við hittum ljóðskáldið Jakub Stachowiak sem elti ástina á íslenskunni til Íslands, við förum til fjalla og hittum flakkarann Lindu Ársælsdóttur sem virðist þrífast best í köldu loftslagi og fallegri náttúru. Og að lokum hittum við hjónin Herdísi Önnu Jónsdóttur og Steef van Oosterhout og heyrum sögu af heimþrá.

Norskur myndaflokkur þar sem fylgst er með venjulegu fólki sem er svo ástríðufullt í áhugamálum sínum að það liggur við brjálæði. Þáttastjórnandinn Are Sande Olsen tekur viðtöl við fólk með ótrúlegustu áhugamál og skoðar þau ofan í kjölinn.
Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
Í Kilju vikunnar birtist viðtal við Elizu Reid en hún sendir nú frá sér bók sem nefnist einfaldlega Og svo varð ég forsetafrú. Segir frá aðdraganda þess að hún settist að á Bessastöðum og tíma hennar þar. Bókin kemur jafnframt út á ensku í Kanada og Bandaríkjunum. Kristján Jóhann Jónsson ræðir við okkur um Prinsessur og prakkara, en það er safn með nýjum þýðingum hans á sígildum ævintýrum stórsnillingsins H.C. Andersen. Bernd Ogrodnik brúðugerðarmaður segir frá bók þar sem hann blandar frásögn af lífi sínu á Íslandi saman við vangaveltur um lífið og tilveruna - hún nefnist Icelandic Watermelons and a Horse Called Spark. Í Bókum og stöðum förum við vítt og breitt um Strandir og skoðum hið hrikalega landslag þar. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um Piparmeyjar eftir Sigríði Kristínu Þorgrímsdóttur, Myrkravald eftir Evu Björg Ægisdóttur og Jérôme Loubry og Daga mína í Morisaki bókabúðinni eftir Satoshi Yagisawa.

Saga sauðkindarinnar á Íslandi er samofin sögu þjóðarinnar. Í þessari mynd er varpað ljósi á sögu sauðaþjóðar. Umsjón og dagskrárgerð: Guðný Halldórsdóttir. e.
Hildur Vala Baldursdóttir tekur á móti góðum gestum í nýjum skemmtiþætti þar sem boðið er upp á skemmtiatriði í beinni útsendingu í bland við upptekin atriði og lifandi tónlistarflutning. Tónlistarstjóri: Magnús Jóhann Ragnarsson. Leikstjórn: Allan Sigurðsson, Hannes Þór Arason og Hannes Þór Halldórsson. Framleiðsla: Atlavík. Stjórn útsendingar: Vilhjálmur Siggeirsson.
Hvað einkennir íslenskar kvikmyndir? Hvað er skemmtilegt við þær og hvað leiðinlegt? Gestastjórnendur eru Pétur Jóhann Sigfússon og Sverrir Þór Sverrisson.

Loft hefur svifið um loftin blá frá örófi alda án þess að lenda nokkurn tímann á jörðu. Það kynnist ævintýralegri tilvist mannsbarna í gegnum sjónaukann sinn og endurspeglar sjálft sig í þeim.
Loft reynir að laga loftfarið sitt án árangurs. Sjón fylgist spennt með krökkunum keppa í Fánaráni og Áróra tekur til í náttúrunni og heimsækir Sorpu.

Bolli og Bjalla lýsa hörkuspennandi íþróttakeppni þar sem krakkar keppast við að klára allskonar íþróttaþrautir.
Bolli og Bjalla mæta aftur í íþróttatíma, þrátt fyrir að Bjalla sé meidd í fætinum.
ÍþróttaTÍMI er æsispennandi keppni á milli tveggja liða sem mætast í þrem þrautum: Svampasundi, Buxnaflækju og Kúlustigakasti.
Liðin keppast við að safna stigum og annað liðið stendur upp úr sem sigurvegari.
Í þessum þætti mætast liðin Tveir fellar og Stjörnunar
Keppendur eru:
Hrafnhildur Lilja Kristjánsdóttir
Myrra Hólm Matthíasdóttir
Jökull Máni Davíðsson
Úlfar Kári Eðvarðsson
Sumarliði hefur tekið við heimilisfræðikennslunni og fer með nemendur sína í tímflakk, þar sem við kynnumst hinum ótrúlegustu réttum frá mismunandi tímabilum í sögunni.
Skyndibiti ruddi sér til rúms á 6. áratug 20. aldar og ef þú varst í vafa um hvað ætti að vera í matinn þá settirðu það í hlaup!
Já, fiskur í hlaupi, skinka í hlaupi, saltstangir í hlaupi, hlaupi í hlaupi. Möguleikarnir eru endalausir.
Hljómskálinn snýr aftur, fullur langt út úr dyrum af nýjum viðtölum, nýjum andlitum og nýrri íslenskri tónlist. Sigtryggur Baldursson og Una Torfadóttir yfirheyra íslenskt tónlistarfólk og greiningardeildin kryfur bransann til mergjar. Framleiðsla: Stjörnusambandsstöðin.
Sumt tónlistarfólk getur ýmislegt annað en sungið og spilað á hljóðfæri. Allskyns listafólk finnur sköpunarkraftinum farveg gegnum hinar ýmsu listgreinar og fremur jafnvel galdur. Fjöllistafólkið Klemens Hannigan og Ásta Fanney fremja einn slíkan fyrir okkur.

Íslensk tónlistarmyndbönd.
Lag: Joga
Flytjandi: Hildur
Höfundur: Björk Guðmundsdóttir og Sjón

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk í bæjum og sveitum og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Þórdís Claessen, Hafsteinn Vilhelmsson, Amanda Guðrún Bjarnadóttir og Andri Freyr Viðarsson. Dagskrárgerð: Jóhannes Jónsson, Hjalti Stefánsson, Benedikt Nikulás Anes Ketilsson, Björgvin Kolbeinsson og Adelina Antal.

Heimildarþáttaröð þar sem David Attenborough kannar náttúru og dýralíf í Asíu, stærstu heimsálfu jarðar. Þættirnir eru talsettir á íslensku en sýndir með ensku tali á RÚV 2 á sama tíma.
Þriðja og síðasta þáttaröð þessara sannsögulegu dönsku þátta. Árið er 1968 og þrátt fyrir velgengni carmenrúllanna á heimsvísu er fyrirtækið í fjárhagsvandræðum. Axel þarf að taka stórar ákvarðanir til að bjarga fyrirtækinu, með ófyrirséðum afleiðingum fyrir alla sem standa honum nærri. Aðalhlutverk: Morten Hee Andersen, Maria Rossing, Lars Ranthe og Nicolai Jørgensen. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Frönsk verðlaunamynd frá 2022 í leikstjórn Alberts Serra. Franski embættismaðurinn De Roller flækist inn í leynilegt ráðabrugg á Tahítí þegar hann rannsakar óhugnanlegar sögusagnir um kjarnorkutilraunir franska hersins á eyjunni. Aðalhlutverk: Benoît Magimel, Pahoa Mahagafanau og Marc Susini. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Heimildarþáttaröð þar sem David Attenborough kannar náttúru og dýralíf í Asíu, stærstu heimsálfu jarðar.