
Teiknimyndaþættir fyrir börn byggðir á samnefndri breskri barnabók frá árinu 1994 eftir Sam McBratney, með myndskreytingum eftir Anitu Jeram. Bókin hefur verið gefin út á yfir 53 tungumálum og selst í yfir 28 milljónum eintaka.
Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Flóra er níu ára og finnur gat í limgerðinu úti í garði. Hún skríður í gegn og er skyndilega stödd í skóginum endalausa – galdraheimi þar sem allt getur gerst. Þar ráfa um skrítnar og stórkostlegar verur. Þær lenda í ýmiss konar vandræðum og enginn getur hjálpað þeim – nema kannski Flóra sjálf?
Danni tígur er þáttaröð sem kennir börnum að túlka tilfinningar sínar. Hvenær upplifa þau sorg, reiði og hvenær eru þau þakklát. Danni notar tónlist og syngur um það sem hann upplifir sem leyfir börnum að tileinka sér það frekar. Þátturinn er ætlaður leikskólabörnum og kennir tilfinningagreind og sjálfsvirðingu sem og virðingu fyrir öðrum.

Friðþjófur forvitni er forvitinn og yndislegur api sem getur oft á tíðum verið full ævintýragjarn. Fylgjumst með ævintýrum hans og mannsins með gula hattinn eiganda hans.

Töfratú er fantasíuland dásamlegra álfa og hafmeyja þar sem raunveruleg viðfangsefni á borð við systkinaerjur, sanngirni og sjálfstraust eru könnuð nánar.

Jasmín og Jómbi eru góðir vinir sem elska tónlist og njóta tónanna sem óma um Hljómbæ.

Fræðandi þættir um ótrúlega útreikninga fyrir börn á öllum aldri.
Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk í bæjum og sveitum og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Þórdís Claessen, Hafsteinn Vilhelmsson, Amanda Guðrún Bjarnadóttir og Andri Freyr Viðarsson. Dagskrárgerð: Jóhannes Jónsson, Hjalti Stefánsson, Benedikt Nikulás Anes Ketilsson, Björgvin Kolbeinsson og Adelina Antal.
Í Landanum í kvöld pælum við í heilsu. Við búum til skyr frá grunni með leikskólakrökkum í Mývatnssveit, kíkjum á kaffihús á Bolungarvík og föndrum skrautlega eyrnalokka á Eskifirði.
Gísli Marteinn tekur á móti góðum gestum á föstudagskvöldum í vetur og fer með þeim yfir helstu atburði vikunnar í stjórnmálum, menningu og mannlífi. Persónur og leikendur koma í spjall og brakandi fersk tónlistaratriði koma landsmönnum í helgarstemninguna. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.
Gestir þáttarins eru Eva Björg Ægisdóttir, Unnsteinn Manuel Stefánsson og Víkingur Heiðar Ólafsson. Þátturinn er í umsjón Berglindar Festival.
Unnsteinn Manuel frumflytur lagið Bergnuminn.
Víkingur Heiðar flytur stutt lag eftir Bach.
Innslag Berglindar Festival fjallar um framtíð gervigreindarinnar.
AL0R1AN, Alaska1867 og Gross flytja lagið Týnda kynslóðin í lok þáttar.

Umfjallanir um leiki í undankeppni HM kvenna í fótbolta.
Upphitun fyrir leik Englands og Íslands í undankeppni HM kvenna í fótbolta.

Leikir í undankeppni HM kvenna í fótbolta.
Leikur Englands og Íslands í undankeppni HM kvenna í fótbolta.

Umfjallanir um leiki í undankeppni HM kvenna í fótbolta.
Uppgjör á leik Englands og Íslands í undankeppni HM kvenna í fótbolta.

Útsendingar frá Vetrarólympíumóti fatlaðra í Mílanó og Cortina á Ítalíu.
Keppni í 7.5 km skíðaskotfimi á Vetrarólympíumóti fatlaðra í Mílanó og Cortina á Ítalíu.

Fjallað er um Íslendinga sem settu svip sinn á íslenskt samfélag um sína daga með margvíslegum hætti. Þættirnir spegla jafnframt sögu þjóðarinnar og samtíð á ýmsum tímum, menningu, listir, stjórnmál og fleira. Þeir eru byggðir á efni úr safni RÚV á nærfellt hálfrar aldar tímabili. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Árni Scheving var einn helsti djasslistamaður þjóðarinnar. Hann hóf ungur að starfa sem hljómlistarmaður og lék með öllum helstu hljómsveitum og tónlistarmönnum þjóðarinnar á öllum sviðum tónlistar. Flest hljóðfæri léku í höndum hans en víbrafónninn var þó höfuðhljóðfærið, einkum í djasstónlist.
Dagskrárefnið er úr safni Sjónvarpsins. Umsjón og dagskrárgerð: Andrés Indriðason.

Menningarþættir fyrir ungt fólk frá 2002-2003. Í þáttunum er m.a. fjallað um tónlist og mannlíf, kynntar ýmsar starfsgreinar og fastir liðir eins og dót og vefsíða vikunnar verða á sínum stað.
Umsjón: Sigrún Ósk Kristjánsdóttir og Vilhelm Anton Jónsson.
Dagskrárgerð: Helgi Jóhannesson og Hjördís Unnur Másdóttir.

Jöklarnir hafa hopað og allar þjóðsagnaverurnar úr gömlu bókunum eru komnar fram í dagsljósið. Ormhildur og Albert gamli leggja af stað í leiðangur með Guðrúnu og Brynhildi. Þau ætla að fremja galdraseið til að kveða vættirnar aftur inn í jöklana. Allt fer á hliðina þegar Albert er tekinn höndum og hópurinn hrapar í fjallinu. Á ferðalaginu uppgötvar Ormhildur að hún býr yfir leyndum hæfileika og kemst að því að töfraverurnar eru ekki allar þar sem þær eru séðar.
Guðrún kemst að því að vandræði þorpsins stafa af afkvæmum urðarkattar. Þorpsbúar safna kettlingunum saman og Ormhildur vill að þeim verði sleppt uppi í fjöllum. Á leiðinni mæta þau mannýgu nauti sem Guðrún ruglar rækilega í ríminu svo það lætur þau vera. Álfur fellst á vopnahlé við Rauð þegar hann kemst að því að þeir eiga sameiginlega andstæðinga í Ormhildi og hópnum hennar.
Velkomin til Eplabæjar. Eplabær er svo daufur og óspennandi að hann hefur verið tekinn út af landakortum. En ef betur er að gáð fela jafnvel mestu leiðindin í sér ævintýri. Stundum getur ómerkilegasti staðurinn orðið vettvangur stórkostlegra uppátækja – ef ímyndunaraflið fær að ráða.
Þegar afi ykkar er búin að þjálfa ykkur sem skrímslaveiðimenn, þá er ekkert annað í stöðunni en að veiða öll skrímslin! Það er þó eitt vandamál, krakkarnir elska skrímslin og vilja helst bara bjarga þeim. Það geta þau gert á meðan afi blundar, eða hvað?

Þættir um óteljandi ævintýri Strumpanna og Kjartans galdrakarls sem fara hér á kostum í Strumpabæ.

Þáttaröð í sex hlutum þar sem nafnarnir og sjónvarpsmennirnir Andri Freyr Viðarsson úr þáttunum Andri á flandri og Andri Freyr Hilmarsson úr Með okkar augum leggja land undir fót og er ferðinni heitið til Bretlandseyja. Þar freista þeir þess að hitta átrúnaðargoð Andra Freys Hilmarssonar, Mr. Bean. Á meðan Andri Freyr Viðarsson reynir að komast í samband við leikarann Rowan Atkinson nota nafnarnir tímann og skoða sig um á Bretlandseyjum.
Í fyrsta þætti heimsækja nafnarnir þekktan tökustað úr þáttunum Mr. Bean við suðurströnd Englands, berja Stonehenge augum, biðja drottinn um styrk í sögufrægri kirkju og fylgjast með fólki hlaupa niður brekku á eftir osti.

Lottó-útdráttur vikunnar.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Ný íslensk heimildarþáttaröð í umsjón Ara Eldjárns um íslenskar kvikmyndir. Í hverjum þætti er ein sígild kvikmynd tekin fyrir. Skyggnst er á bak við tjöldin og áður óséð myndefni birt. Rætt er við leikstjóra, handritshöfunda, framleiðendur, leikara, búninga- og leikmyndahönnuði, kvikmyndastjóra, klippara og fleira fagfólk, sem ljóstra upp ýmsum leyndarmálum frá gerð myndanna.
Fjallað er um gerð gamanmyndarinnar Dís frá árinu 2004. Meðal þeirra sem fram koma eru Álfrún Örnólfsdóttir, Silja Hauksdóttir, Oddný Sturludóttir og framleiðandinn Agnes Johansen. Þátturinn er tileinkaður minningu Agnesar.

Íslensk kvikmynd frá 2004 um Dís sem er 23 ára kona á krossgötum. Hún býr með Blævi, vinkonu sinni, í miðbæ Reykjavíkur og vinnur á Hótel Borg á meðan hún fikrar sig áfram á menntabrautinni og á torfærum vegum ástarinnar. Leikstjóri: Silja Hauksdóttir. Aðalhlutverk: Álfrún Örnólfsdóttir, Ilmur Kristjánsdóttir, Árni Tryggvason og Ylfa Edelstein.

Óskarsverðlaunamynd frá 2014 í leikstjórn Damiens Chazelle. Hinn nítján ára gamli Andrew Neiman er efnilegur jazztrommari með stóra drauma. Hann hefur nám við eftirsóttan tónlistarháskóla þar sem kennari hans svífst einskis til að ná fram hæfileikum nemanda síns. Aðalhlutverk: Miles Teller, J.K. Simmons og Melissa Benoist. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Breskir spennuþættir byggðir á samnefndri skáldsögu Anthonys Horowitz. Ritstjórinn Susan Ryeland fær í hendurnar handrit að nýjustu skáldsögu glæpasagnahöfundarins Alans Conway. Þegar hún kemst að því að lokakaflann vantar í handritið hefur hún leit að týndu blaðsíðunum og flækist í leiðinni óvænt í vef lyga og leyndarmála. Aðalhlutverk: Lesley Manville, Conleth Hill og Tim McMullan.

Útsendingar frá Vetrarólympíumóti fatlaðra í Mílanó og Cortina á Ítalíu.
Keppni í brun karla og kvenna á Vetrarólympíumóti fatlaðra í Mílanó og Cortina á Ítalíu.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.