19:45
Stjörnubíó (4 af 6)
Dís

Ný íslensk heimildarþáttaröð í umsjón Ara Eldjárns um íslenskar kvikmyndir. Í hverjum þætti er ein sígild kvikmynd tekin fyrir. Skyggnst er á bak við tjöldin og áður óséð myndefni birt. Rætt er við leikstjóra, handritshöfunda, framleiðendur, leikara, búninga- og leikmyndahönnuði, kvikmyndastjóra, klippara og fleira fagfólk, sem ljóstra upp ýmsum leyndarmálum frá gerð myndanna.

Fjallað er um gerð gamanmyndarinnar Dís frá árinu 2004. Meðal þeirra sem fram koma eru Álfrún Örnólfsdóttir, Silja Hauksdóttir, Oddný Sturludóttir og framleiðandinn Agnes Johansen. Þátturinn er tileinkaður minningu Agnesar.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 42 mín.
Dagskrárliðurinn er textaður.
,