
Nýir íslenskir heimildarþættir eftir Láru Zulima Ómarsdóttur. Hvernig er að búa í nánum tengslum við náttúruna? Hvað er það í náttúrunni sem kallar svo sterkt á suma? Lára kynnist viðmælendum sínum og fer með þeim á þeirra uppáhaldsstaði, þar á meðal leynistaði sem fáir þekkja. Hún sýnir svo bandaríska ljósmyndaranum og ævintýramanninum Chris Burkard þessar einstöku náttúrugersemar, en hann sérhæfir sig í ljósmyndun á köldum slóðum. Framleiðsla: Zulima ehf.
Víðir Hólm Guðbjartsson er síðasti bóndinn í Ketildölum. Hann býr á bænum Grænuhlíð, sem stendur í Bakkadal í Arnarfirði á Vestfjörðum. Dalurinn er gróinn með skeljasandsstrandlengju, en ofar eru skriður svo brattar og hömrum girtar að erfiðar eru yfirferðar. Víðir segist hvergi annars staðar vilja vera og fer með okkur á þann stað sem að hans mati er sá fegursti á allri jarðarkringlunni. Að lokum fer Lára með bandaríska ljósmyndaranum og ævintýramanninum Chris Burkard um dalinn.