Danskir þættir sem fjalla um einmanaleika hjá miðaldra fólki. Í þáttunum er rætt við fjóra einstaklinga sem upplifa sig einmana, þrátt fyrir að allt líti út fyrir að ganga vel hjá þeim út á við. Í þáttunum fara þau hvert sínar leiðir í tilraunum til að brjótast út úr einmanaleikanum.
Spurningakeppni sveitarfélaga frá 2018. Þátttakendur að þessu sinni eru lið frá þeim sveitarfélögum sem komust í úrslit árin á undan eða hafa oftast komist nálægt því. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Sólmundur Hólm. Spurningahöfundur og dómari er Jón Svanur Jóhannsson. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.
Íslensk þáttaröð í átta hlutum. Einlægar og opinskáar frásagnir fólks sem býr við aðstæður í daglegu lífi sem eru ólíkar öllu sem flestir eiga að venjast. Dagskrárgerð: Elín Sveinsdóttir. Framleiðsla: SERES hugverkasmiðja
Ótrúleg útsjónarsemi, sífelld hreyfing og útivist hefur nýst Kristni Vagnssyni vel. Hann fékk ranga greiningu og missti kraftinn í fótleggjunum, sem hefði auðveldlega mátt koma í veg fyrir.
Þáttaröð í sex hlutum þar sem fjallað er um sameiginlegar minningar íslensku þjóðarinnar á léttan og nýstárlegan hátt. Umsjónarmennirnir Margrét Blöndal og Felix Bergsson leggjast í fullkomlega óvísindalega mannfræðirannsókn til að reyna að skilja íslensku þjóðina betur á hundrað ára afmæli fullveldisins. Meðal þess sem þau skoða eru dellurnar sem þjóðin hefur gengið með í gegnum tíðina, nekt á Íslandi, og svo verða séríslensku sunnudagarnir sérstaklega kannaðirr. Dagskrárgerð: Ragnheiður Thorsteinsson.
Á níunda áratugnum var sungið um mikilvægi þess að vera með á nótunum og íslenska þjóðin söng með enda voru engir fljótari að tileinka sér eitthvað sniðugt utan úr heimi. Um þetta verður fjallað í fimmta þætti af Veröld sem var. Símboðar, snjallsímar, telefax og tölvur. Allt var komið í hendur landans á methraða. Svo voru það bankarnir. Víxlar, sparimerki, hraðbankar og kreditkort. Að lokum var allt keyrt í kaf en við höldum nú samt áfram að vera með á nótunum.

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Tæpar tvær vikur eru til sveitarstjórnarkosninga og spennan farin að magnast. Hvaða málefni skipta fólk mestu máli í tengslum við kosningarnar? Við kynnum okkur það í þættinum í kvöld.
Bílaumferð hefur verið að aukast á höfuðborgarsvæðinu á undanförnum árum og flest bendir til að hún muni halda því áfram að óbreyttu, með sívaxandi umferðarteppum á annatímum. Enn eru þó nokkur ár þar til borgarlína kemst í gagnið, þar sem strætó á sérakreinum á að létta á álaginu. En hvað er til ráða þangað til? Gestir Kastljóss eru Daði Baldur Ottósson, samgönguverkfræðingur hjá Eflu, og Þorsteinn Hermannsson, framkvæmdastjóri Betri samgangna.
Við heimsækjum einnig Kötlu Sólnes sem er ung og upprennandi kvikmyndagerðarkona.
Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Í fyrri hlutanum rýnum við sveitarstjórnarkosningarnar sem fara fram eftir tæpar tvær vikur.
Gestir:
Sunna Sæmundsdóttir fréttastjóri á fréttastofu Sýnar
Eva Marín Hlynsdóttir prófessor í stjórnmálafræði
Magnús Geir Eyjólfsson þingfréttamaður RÚV
Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir ráðgjafi
Í seinni hlutanum er rætt við blaðamanninn og rithöfundinn Evan Osnos um stöðuna í bandarískum stjórnmálum.
Sænsk heimildarþáttaröð frá 2025 sem varpar ljósi á lífið í Svíþjóð á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar. Í tilefni af því að 80 ár voru frá stríðslokum deilir sænska þjóðin persónulegum minningum úr stríðinu í formi bréfa, kvikmynda, ljósmynda og dagbóka. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Finnsk leikin þáttaröð frá 2025. Tuttugu árum eftir að nágranni og æskuást Linnéu hverfur sér hún hann óvænt í sjónvarpinu. Linnéa einsetur sér að komast að því hvers vegna hann hvarf og opnar í kjölfarið á gamalt leyndarmál sem tengist fjölskyldum þeirra beggja. Aðalhlutverk: Sannah Nedergård, Sebastian Blomqvist og Rasmus Slätis. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Önnur þáttaröð þessara dönsku sakamálaþátta. Lögreglumaðurinn Rolf Larsen kemst á snoðir um mansalshring þegar 19 Víetnamar finnast myrtir í farmrými vöruflutningabíls. Aðalhlutverk: Anders W. Berthelsen, Olivia Joof Lewerissa og Zofia Wichlacz. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.