15:50
Okkar á milli
Sigríður Torfadóttir Tulinius

Sigmar Guðmundsson fær til sín góða gesti úr öllum áttum og ræðir við þá undir fjögur augu. Gestirnir eiga það sameiginlegt að hafa áhugaverða sögu að segja. Dagskrárgerð: Salóme Þorkelsdóttir.

Sigmar ræðir við Sigríði Torfadóttur Tulinius sem hefur búið í London undanfarin ár og er þar í hringiðu breskra stjórnmála. Hún stundaði nám í listaháskólanum hér heima og lærði myndlist en lífið tók u-beygju í hruninu. Hún fór í mastersnám í borgarhönnun og þaðan í lögfræði og starfar nú fyrir skoska þjóðarflokkinn á breska þinginu.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 25 mín.
e
Endursýnt.
Dagskrárliðurinn er textaður.
,