Jöklarnir hafa hopað og allar þjóðsagnaverurnar úr gömlu bókunum eru komnar fram í dagsljósið. Ormhildur og Albert gamli leggja af stað í leiðangur með Guðrúnu og Brynhildi. Þau ætla að fremja galdraseið til að kveða vættirnar aftur inn í jöklana. Allt fer á hliðina þegar Albert er tekinn höndum og hópurinn hrapar í fjallinu. Á ferðalaginu uppgötvar Ormhildur að hún býr yfir leyndum hæfileika og kemst að því að töfraverurnar eru ekki allar þar sem þær eru séðar.
Hópurinn endar í stórum fimmhyrndum sal. Galdrar Alberts og Guðrúnar fara úrskeiðis. Álfur og Hallgrímur birtast og þau sogast öll inn í ormagöng þar sem tíminn er brenglaður. Inn í göngunum býr draugur galdramanns sem fleygir Ormhildi, Kisa og Álfi út. Þau komast í þyrluna, sem lið Hallgríms hefur gert við, og fljúga heim á Breiðholtseyju.
