
Fyrsta teiknimyndin í fullri lengd um Línu Langsokk, frá árinu 1997. Þú hefur aldrei hitt stelpu sem er eins og Lína Langsokkur, tígursveiflu-fléttuprakkarinn með ofurkraftana og ávallt með auga fyrir skemmtun. En það virðast ekki allir kunna að meta Línu í þorpinu hennar, sérstaklega ekki hin afskiptasama frú Prysselius sem er staðráðin í að stöðva ærslaganginn í Línu. Til að leika á hana þarf Lína á öllum sínum kröftum og kunnáttu að halda og svo fær hún hjálp úr óvæntri átt.
Íslensk heimildarmynd um þríbura. Hanna Björk Hilmarsdóttir og Arnar Long Jónsson eiga von á þríburum. Fyrir eiga þau rúmlega ársgamlan dreng. Við fáum að vera fluga á vegg í lífi fjölskyldunnar sem tekst á við margvíslegar áskoranir og fær óvæntan bónusglaðning í miðri á. Við skyggnumst líka inn í líf þríbura á öllum aldri, sjáum skemmtileg myndskeið og veltum fyrir okkur hvernig sé að alast upp sem þríburi.
Íslensk heimildarmynd frá 2019 í leikstjórn Ingvars Ágústs Þórissonar. Rússneskur maður að nafni Gleb Terekhin skrifar litrík bréf til fjölmiðla og óskar eftir aðstoð við að finna sér eiginkonu og vinnu á Íslandi. Tíu árum síðar rekst Kristján Guðmundsson listamaður á bréfin og finnur í þeim samsvörun við lífsviðhorf sín, og félaga sinna í félagi Hreiðars heimska, og ákveður að bjóða Gleb til Íslands.
Spurningakeppni sveitarfélaga frá 2018. Þátttakendur að þessu sinni eru lið frá þeim sveitarfélögum sem komust í úrslit árin á undan eða hafa oftast komist nálægt því. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Sólmundur Hólm. Spurningahöfundur og dómari er Jón Svanur Jóhannsson. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.
Íslensk þáttaröð í átta hlutum. Einlægar og opinskáar frásagnir fólks sem býr við aðstæður í daglegu lífi sem eru ólíkar öllu sem flestir eiga að venjast. Dagskrárgerð: Elín Sveinsdóttir. Framleiðsla: SERES hugverkasmiðja
Alma Ýr Ingólfsdóttir nýtur lífsins með litla drengnum sínum. Á átjánda ári veiktist hún alvarlega af heilahimnubólgu sem varð til þess að taka varð báða fætur að hluta og framan af níu fingrum.
Íslenskir og erlendir jötnar reyndu með sér í æsispennandi keppni, þegar Aflraunamótið Víkingurinn var haldið 2025. Nú var keppt Vestfjörðum, þar sem einnig var litast um í lífi, starfi, listum og sögu heimamanna. Umsjón: Samúel Örn Erlingsson. Dagskrárgerð: Óskar Þór Nikulásson.
Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur fjallar um flest sem heyrir til garðvinnu; jurtir og blómaskrúð. Um dagskrárgerð sér Björn Emilsson.
Gurrý fer yfir ýmis vorverk í garðinum. Svo fer hún til Kristínar Helgu Gísladóttur og Sigurðar Einars Þorsteinssonar í Reynihvammi í Kópavogi og skoðar garðinn þeirra sem er bæði fallegur og forvitnilegur.


Minningarþáttur um Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætisráðherra, sem lést 1. mars, 78 ára að aldri. Með honum hverfur rödd sem mótaði íslensk stjórnmál um áratugaskeið. Dregin er upp mynd af manninum og leiðtoganum í gegnum sögur þeirra sem þekktu hann á ýmsum tímum. Dagskrárgerð: Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir og Ragnheiður Thorsteinsson.

Íslensk heimildarmynd um fjórar ungar stúlkur sem stíga sín fyrstu skref sem leiðsögumenn veiðimanna við Laxá í Aðaldal, stærstu laxveiðiá landsins. Stúlkurnar eru sjöunda kynslóð leiðsögumanna við ána og fjölskyldusaga þeirra samofin árbakkanum. Eftir því sem líður á sumarið eykst sjálfstraust þeirra og færni í faginu en á sama tíma blasa við áskoranir, bæði gagnvart náttúrunni og framtíð fjölskyldufyrirtækisins. Leikstjóri: Gagga Jónsdóttir. Framleiðsla: Sagafilm.

Margverðlaunuð söngleikjamynd frá 2021 í leikstjórn Leos Carax. Henry er umdeildur uppistandari á niðurleið sem verður ástfanginn af heimsfrægu óperusöngkonunni Ann. Þegar dóttir þeirra, Annette, kemur í heiminn kemur í ljós að hún býr yfir dularfullri náðargáfu sem á eftir að breyta lífi þeirra til frambúðar. Myndin skartar tónlist eftir hljómsveitina Sparks en meðlimir hennar skrifuðu einnig handrit myndarinnar. Aðalhlutverk: Adam Driver, Marion Cotillard og Simon Helberg. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Norsk heimildarþáttaröð um Noman, sem er múslimi af pakistönskum uppruna og samkynhneigður. Hann leitar svara við því hvers vegna sumir hata fólk eins og hann og hvers vegna hann skammast sín oft fyrir að vera sá sem hann er.