
Teiknimyndaþættir fyrir börn byggðir á samnefndri breskri barnabók frá árinu 1994 eftir Sam McBratney, með myndskreytingum eftir Anitu Jeram. Bókin hefur verið gefin út á yfir 53 tungumálum og selst í yfir 28 milljónum eintaka.
Serían gerist í litríkum og súrsætum skrímsla heimi þar sem fjölbreytt skrímsli búa í sátt og sæti. Í hverjum þætti kynnumst við nýju skrímsli sem býr yfir vægast sagt sérstökum eiginleikum. Kíkjum við og sjáum hvað setur, kannski við getum kynnst þeim aðeins betur.
Finni Krumpa prumpuskrímsli fólk í vanda, tekur hún til sinna handa. Hún sturtar í sig nokkrum rúsínum og þá þýtur hún prumpandi af stað. Hún flýgur um allt, hátt og lágt með prumpuský í eftirdragi. Best að halda niðri í sér andanum skyldi hún fljúga fram hjá!
Gamansamir þættir um strútapabbann Edda og áttburana hans. Eddi strútapabbi er fullkomnunarsinni og reynir að gera allt sem í hans valdi stendur til að vernda áttburana sína. Hann á fullt í fangi með það, enda eru ævintýrin hjá stórri fjölskyldu mörg og ímyndunaraflið mikið.
Eddi strútapabbi segir börnum sínum sögu um hinn ósýnilega Edda.
Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Jöklarnir hafa hopað og allar þjóðsagnaverurnar úr gömlu bókunum eru komnar fram í dagsljósið. Ormhildur og Albert gamli leggja af stað í leiðangur með Guðrúnu og Brynhildi. Þau ætla að fremja galdraseið til að kveða vættirnar aftur inn í jöklana. Allt fer á hliðina þegar Albert er tekinn höndum og hópurinn hrapar í fjallinu. Á ferðalaginu uppgötvar Ormhildur að hún býr yfir leyndum hæfileika og kemst að því að töfraverurnar eru ekki allar þar sem þær eru séðar.
Urðarkettlingurinn sem Ormhildur bjargaði kemur aftur til hennar og vill ekki fara frá henni. Ormhildur fellur og rotast og þegar hún rankar við sér kemst hún naumlega undan Álfi og Rauð. Mamma urðarkettlinganna ræðst á þorpið en Ormhildur kemur á sáttum milli hennar og mannfólksins. Í þakklætisskyni ber hún Ormhildi og félaga hennar á bakinu að eyðilandinu.


Árið 2018 voru 100 ár frá fæðingu hins mikla kvikyndagerðarmanns Ingmars Bergman. Af því tilefni gerði sænska sjónvarpið stutta sjónvarpsþætti um hann.

HM í frjálsíþróttum innanhúss í Póllandi.

Sænskir þættir þar sem litið er heim til þekktra arkitekta í Svíþjóð. Við fáum að sjá einstök og áhugaverð heimili þeirra og hvað þeim finnst gera hús að góðu heimili.
Heimildarþættir þar sem Halla Ólafsdóttir skoðar hvers vegna fólk flytur landshorna og heimshorna á milli - og hvað það er sem fólk kallar „heima“.
Valdís Hrönn Berg Ingudóttir og Ómar Smári Jónsson láta draum verða að veruleika með því að flytja til Spánar. Við hittum þau í Hafnarfirði og svo nokkrum mánuðum síðar á nýja heimilinu þeirra á Spáni. Við kynnumst tónlistarkonunni Markétu Irglova frá Tékklandi sem semur tónlist sína á Seltjarnarnesi með útsýni yfir Sundin. Við göngum um Bolungarvík – sem reynir að draga til sín fleiri íbúa svo þeir verði fleiri en þúsund og kynnumst Karólínu Elísabetardóttur sem flutti húsið sitt með sér í fjöllin – en hún vill hvergi frekar eiga heima.

Bikarmót í hópfimleikum í Egilshöll.

Stuttir sænskir þættir um ólíkar skoðanir fólks á hinum ýmsu málefnum. Hvað gerist þegar tvær manneskjur hittast og rökræða það sem þær eru ósammála um? Læra þær að skilja hvor aðra betur?
Ný íslensk heimildarþáttaröð í umsjón Ara Eldjárns um íslenskar kvikmyndir. Í hverjum þætti er ein sígild kvikmynd tekin fyrir. Skyggnst er á bak við tjöldin og áður óséð myndefni birt. Rætt er við leikstjóra, handritshöfunda, framleiðendur, leikara, búninga- og leikmyndahönnuði, kvikmyndastjóra, klippara og fleira fagfólk, sem ljóstra upp ýmsum leyndarmálum frá gerð myndanna.
Fjallað er um gerð stórmyndarinnar Englar alheimsins frá árinu 2000. Meðal þeirra sem fram koma eru Ingvar E. Sigurðsson, Björn Jörundur Friðbjörnsson, Halldóra Geirharðsdóttir, Sigvaldi Kárason, Hilmar Örn Hilmarsson, Einar Már Guðmundsson og Friðrik Þór Friðriksson.
Stuttir heimildarþættir um sjö íslenska ljósmyndara, vinnsluaðferðir þeirra og verk. Þættirnir spruttu upp úr þáttaröðinni Ímynd sem fjallaði um ljósmyndun og íslenska ljósmyndara. Framleiðsla og stjórn upptöku: Hrafnhildur Gunnarsdóttir.
Bára Kristinsdóttir lærði ljósmyndun í Svíþjóð og kallar sig samtímaljósmyndara. Eftir hana liggur stórmerkilegt heimildaljósmyndasafn frá réttindabaráttu homma og lesbía frá níunda áratug síðustu aldar til dagsins í dag.
Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
Í Kilju vikunnar förum við í Stykkishólm og fjöllum um skáldið Júlíönu Jónsdóttur. Þar bjó Júlíana um skeið og var þá fyrst íslenskra kvenna til að gefa út skáldverk - ljóðabók sem nefnist Stúlka. Það var árið 1878. Nú er komið út heildarsafni ljóða Júlíönu. Við segjum líka frá árlegri bókmenntahátíð sem haldin er í Stykkishólmi og nefnist einmitt Júlíana. Hún verður haldin um næstu helgi. Viðmælendur okkar eru Gréta Sigurðardóttir, sem stendur á bak við bæði útgáfu ljóðabókarinnar og bókmenntahátíðina, og Ellert Kristinsson sem hefur látið gera upp húsið sem Júlíana bjó í. Arndís Þórarinsdóttir rithöfundur segir okkur frá uppáhaldsbókum sínum. Magnús Lyngdal Magnússon spjallar um nýja bók sína sem nefnist Ópera: Á ferðalagi um sögu listformsins og við skoðum búta úr völdum óperum. Tómas Ævar Ólafsson ræðir um útvarpsþætti sem hafa vakið mikla athygli á Rás 1 - þar er rýnt í bækur Halldórs Laxness undir yfirskriftinni Aldrei las ég Laxness. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um Minnisblöð veiðimanns eftir Ívan Túrgenév, Yrpu eftir Hildi Knútsdóttur og Sjáanda eftir Ester Hilmarsdóttur. A
Matreiðsluþættir með Kristni Guðmundssyni. Eftir að Kristinn varð pabbi fór hann að elda ofnrétti oftar. Þar sem hann er vanur að fara ótroðnar slóðir eldar hann alla réttina í eldofni sem hann byggði með vinum sínum í Norður-Frakklandi. Dagskrárgerð og framleiðsla: Kristinn Guðmundsson.


Þau Ylfa og Máni standa vaktina í eldhúsinu og kenna okkur hvernig á að elda og baka ýmislegt góðgæti. Dagskrárgerð: Eva Rún Þorgeirsdóttir. Umsjón: Ylfa Blöndal og Hilmar Máni Magnússon.
Ylfa of Máni búa til sparilegan morgunmat, amerískar pönnukökur. Hægt er að bæta allskonar hráefnum á pönnukökurnar eins og súkkulaði og berjum, en að þessu sinni nota krakkarnir bláber og síróp.
Uppskrift:
1 msk lyftiduft
¼ tsk salt
1 tsk sykur
2 egg (léttþeytt)
30 g smjör
300 ml mjólk
225 hveiti
1 tsk vanilludropar
smjör til steikingar
Aðferð:
Bræðið smjörið og kælið.
Setjið öll hráefnin í skál og blandið vel saman.
Setjið smjör á pönnu og hitið.
Bakið pönnukökurnar og snúið þeim við þegar loftbólur eru farnar að myndast í deigið.
Nýir heimildarþættir um þróun íslensks táknmáls frá fyrri tíð til dagsins í dag. Skoðað er hvaða samfélagslegu, menningarlegu og málfræðilegu áhrif móta íslenskt táknmál nútímans, hvað felst í vönduðu íslensku táknmáli og hvernig málið stendur í samanburði við önnur táknmál. Hjördís Anna Haraldsdóttir ræðir við fræðimenn og sérfræðinga í íslensku táknmáli auk notenda málsins í leit að ólíkum sjónarhornum og svörum um stöðu og framtíð málsins.
Hjördís Anna tekur þátt í umræðu um hvernig íslenskt táknmál eigi að líta út og hvaða þættir hafi áhrif á að sum tákn falla úr notkun. Hún hittir yngri kynslóðina og ræðir slangur í táknmáli. Þá ræða Hjördís Anna og Kristín Lena Þorvaldsdóttir um stöðu íslensks táknmáls og útrýmingarhættuna sem málið stendur frammi fyrir.

Stuttir þættir þar sem rætt er við vísindamenn um hvaða áhrif loftslagsbreytingar geta haft á villta náttúru Íslands. Þættirnir eru unnir í samvinnu við Náttúrufræðistofnun Íslands. Dagskrárgerð: Guðbergur Davíðsson og Konráð Gylfason. Framleiðsla: Ljósop.
Í þessum þætti er rætt við vísindamenn um landnám birkis á Skeiðarársandi, fjallað um rannsóknarverkefnin Gloria í Norðurárdal og ForHot í Hveragerði og möguleg áhrif loftslagsbreytinga á gróður í náttúru Íslands.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk í bæjum og sveitum og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Þórdís Claessen, Hafsteinn Vilhelmsson, Amanda Guðrún Bjarnadóttir og Andri Freyr Viðarsson. Dagskrárgerð: Jóhannes Jónsson, Hjalti Stefánsson, Benedikt Nikulás Anes Ketilsson, Björgvin Kolbeinsson og Adelina Antal.

Nýir íslenskir heimildarþættir eftir Láru Zulima Ómarsdóttur. Hvernig er að búa í nánum tengslum við náttúruna? Hvað er það í náttúrunni sem kallar svo sterkt á suma? Lára kynnist viðmælendum sínum og fer með þeim á þeirra uppáhaldsstaði, þar á meðal leynistaði sem fáir þekkja. Hún sýnir svo bandaríska ljósmyndaranum og ævintýramanninum Chris Burkard þessar einstöku náttúrugersemar, en hann sérhæfir sig í ljósmyndun á köldum slóðum. Framleiðsla: Zulima ehf.
Víðir Hólm Guðbjartsson er síðasti bóndinn í Ketildölum. Hann býr á bænum Grænuhlíð, sem stendur í Bakkadal í Arnarfirði á Vestfjörðum. Dalurinn er gróinn með skeljasandsstrandlengju, en ofar eru skriður svo brattar og hömrum girtar að erfiðar eru yfirferðar. Víðir segist hvergi annars staðar vilja vera og fer með okkur á þann stað sem að hans mati er sá fegursti á allri jarðarkringlunni. Að lokum fer Lára með bandaríska ljósmyndaranum og ævintýramanninum Chris Burkard um dalinn.
Leikin þáttaröð frá 2024 byggð á samnefndri skáldsögu eftir Alexandre Dumas. Sjómaðurinn Edmond Dantè er svikinn af þremur mönnum og ranglega fangelsaður á eyju við strendur Marseille. Mörgum árum síðar tekst honum að flýja fangelsið og leitar uppi fjársjóð sem samfangi hans sagði honum frá. Hann hefur nýtt líf undir dulnefninu greifinn af Monte Cristo og er staðráðinn í að ná fram hefndum á mönnunum sem sviku hann. Aðalhlutverk: Sam Claflin, Mikkel Boe Følsgaard og Ana Girardot. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Sannsögulegt pólskt drama frá 2021 í leikstjórn Jan P. Matuszynski. Óhugur er í fólki eftir að menntskælingur er barinn til dauða af hernum í Póllandi árið 1983. Aðalhlutverk: Tomasz Zietek, Sandra Korzeniak og Jacek Braciak. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.

HM í frjálsíþróttum innanhúss í Póllandi.

HM í frjálsíþróttum innanhúss í Póllandi.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.