
Gamansamir þættir um strútapabbann Edda og áttburana hans. Eddi strútapabbi er fullkomnunarsinni og reynir að gera allt sem í hans valdi stendur til að vernda áttburana sína. Hann á fullt í fangi með það, enda eru ævintýrin hjá stórri fjölskyldu mörg og ímyndunaraflið mikið.
Eddi strútapabbi tekur myndir af börnunum sínum og setur í fjölskyldualbúmið. Þegar einn byrjar að gretta sig, verður Eddi dauðhræddur um að allir muni byrja að gretta sig og að fallegu fjölskyldumyndirnar verði aðeins fjarlægur draumur.
Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Ný sería um hinn vinsæla Bjössa Brunabangsa! Í þessari seríu fylgjumst við með hetjunni Bjössa brunabangsa, sem elskar að keyra slökkviliðsbíl og slökkva elda. Á hverjum einasta degi leysir hann spennandi verkefni með hjálp frá samstarfsfólki sínu.
Velkomin til Eplabæjar. Eplabær er svo daufur og óspennandi að hann hefur verið tekinn út af landakortum. En ef betur er að gáð fela jafnvel mestu leiðindin í sér ævintýri. Stundum getur ómerkilegasti staðurinn orðið vettvangur stórkostlegra uppátækja – ef ímyndunaraflið fær að ráða.
Jöklarnir hafa hopað og allar þjóðsagnaverurnar úr gömlu bókunum eru komnar fram í dagsljósið. Ormhildur og Albert gamli leggja af stað í leiðangur með Guðrúnu og Brynhildi. Þau ætla að fremja galdraseið til að kveða vættirnar aftur inn í jöklana. Allt fer á hliðina þegar Albert er tekinn höndum og hópurinn hrapar í fjallinu. Á ferðalaginu uppgötvar Ormhildur að hún býr yfir leyndum hæfileika og kemst að því að töfraverurnar eru ekki allar þar sem þær eru séðar.
Í álögum Guðrúnar gleypir Rauðkembingur Ormhildi, Álf og Kisa. Þau festast í maga ormsins ásamt pínulitlum Nadda. Hallgrímur tekur aftur völdin á Breiðholtseyju og fer fyrir vonlausri árás á ormana.
Skemmtiþáttur um íslenska tungu í umsjón Braga Valdimars Skúlasonar og Vigdísar Hafliðadóttur. Þátttakendur etja kappi í fjölbreyttum leikjum og þrautum. Framleiðsla: Skot í samstarfi við RÚV.
Keppendur eru Davíð Tómas Tómasson, Hörður Unnsteinsson, Margrét Erla Maack og Una Sighvatsdóttir.
Ferskur og hispurslaus þáttur fyrir ungt fólk. Ýmis óvenjuleg málefni krufin út frá skemmtilegu sjónarhorni í nýjum og spennandi þætti þar leitað er svara við spurningum sem brenna á ungu fólki í dag. Umsjón: Katrín Ásmundsdóttir og Unnsteinn Manuel Stefánsson.
Íslenskir heimildarþættir um náttúruhamfarir á Norðurlöndunum og viðbrögð við þeim. Náttúruhamfarir eru nú þegar orðnar tíðari og ofsafengnari um allan heim vegna loftslagsbreytinga. Hvað má læra af því hvernig tekist er á við skógarelda í Finnlandi, skriðuföll í Noregi, sjávarflóð í Svíþjóð, ofsarigningu í Danmörku og jarðskjálfta, eldgos og snjóflóð á Íslandi? Hvernig drögum við úr skaðanum og aukum seiglu og viðnámsþrótt samfélaga til að takast á við þessar hættur?
Fjallað er um norræna náttúruvá þar sem sjónum er beint að áhrifum loftslagsbreytinga og viðbrögðum samfélaga. Fjallað er um yfirvofandi hættu vegna skriðufalla í Åkerneset í Noregi, nýstárlegar flóðavarnir í Danmörku, skógarelda í Svíþjóð og Finnlandi og áhrif hamfara á einstaklinga og samfélög, meðal annars í kjölfar snjóflóða á Íslandi. Þátturinn undirstrikar mikilvægi vöktunar, skipulags og sálræns stuðnings til að efla seiglu samfélaga.

Loft hefur tekið jarðormana í sátt og kynnist nú ævintýralegri tilvist þeirra í gegnum sjónaukann sinn og endurspeglar sjálft sig í þeim.
Krakkarnir vilja hitta Loft og Loft vill hitta krakkana en hver þorir að taka fyrsta skrefið? Hver veit, kannski geta þau lært ýmislegt af hvort öðru.
Þáttaröð um íslenska tónlist í umsjón Sigtryggs Baldurssonar. Honum til halds og trausts eru Guðmundur Kristinn Jónsson og Bragi Valdimar Skúlason. Farið er um víðan völl íslensku tónlistarsenunnar og þekktir tónlistarmenn fengnir til að vinna nýtt efni fyrir þættina.
Textað á síðu 888 í Textavarpi.
Ferðaþættir þar sem leikarinn Örn Árnason bregður sér í hlutverk leiðsögumanns og ferðast um áhugaverða staði við þjóðveginn eða örskammt frá. Frikki Frikk, tökumaður og ljósmyndari, er fylgdarsveinn Arnar í þessum ferðum og saman sýna þeir fram á að stundum er óþarfi að leita langt yfir skammt. Léttir þættir þar sem fjallað er um náttúru, sögu og menningu.
Í þættinum förum við austur yfir fjall og skoðum ýmsa staði nærri og á Selfossi – Kögunarhól, Tannastaði, hraunbolla undir brú, Hellisskóg og fleira.
Bresk leikin þáttaröð frá 2024. Fátæk fjölskylda af verkamannastétt verður vellauðug á svipstundu þökk sé róttækri viðskiptahugmynd þeirra. Þau kveðja slorið og flytja á sveitasetur þar sem þau þurfa að fóta sig í framandi heimi yfirstéttarinnar í Yorkshire í lok 19. aldar. Þættirnir eru byggðir á metsölubókum eftir C. L. Skelton. Aðalhlutverk: Claire Cooper, Liam McMahon og Shannon Lavelle. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Spennumynd frá 2022 eftir Robert Eggers og Sjón. Myndin gerist á Íslandi við upphaf 10. aldar og fjallar um víkingaprins sem ætlar að hefna föður síns sem var myrtur. Meðal leikenda eru Alexander Skarsgård, Nicole Kidman, Claes Bang og Björk. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.