19:45
Kastljós
Samgönguáætlun, nikótínpúðanotkun ungmenna

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.

Það er í mörg horn að líta fyrir samgönguráðherra þessi dægrin. Mikil röskun hefur verið á samgöngum til Vestmannaeyja það sem af er ári. Nú hefur vélarbilun í Herjólfi verið leyst með því að nota Breiðafjarðarferjuna Baldur sem staðgengil, sem bitnar á samgöngum og ferðaþjónustu á Vestfjörðum. Eyjólfur Ármannsson samgönguráðherra fer yfir þessi mál og nýsamþykkta samgönguáætlun.

Þótt reykingar séu á undanhaldi hefur nikótínfíkn fundið sér annan farveg í formi munnpúða, sem njóta sívaxandi vinsælda - ekki síst meðal ungs fólks. Charlotta Holm Pisinger er einn helsti sérfræðingur Dana í tóbaksvörnum. Kastljós tók hana tali.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 21 mín.
Dagskrárliðurinn er textaður.
Bein útsending.
,