Finnskur heimildarþáttur um eiturefni í ódýrum fatnaði sem pantaður er á netinu, til dæmis frá Kína. Í þættinum eru föt frá netversluninni Shein rannsökuð og athugað hvort þau innihaldi óæskileg efni.
Bein útsending frá spurningakeppni sveitarfélaga. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Sólmundur Hólm. Spurningahöfundar: Ævar Örn Jósepsson og Jón Svanur Jóhannsson. Dómari: Ævar Örn Jósepsson. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.
Heimildarþættir frá 2022 sem segja söguna sem þáttaröðin Carmenrúllur er byggð á. Á sjöunda áratug síðustu aldar stóð Arne Bybjerg Pedersen á bak við einn besta árangur Danmerkur í útflutningi þegar hann setti fé í þróun á hárrúllum sem áttu eftir að gjörbreyta hártískunni.
Danskir heimildarþættir þar sem sex pör sem hafa verið gift í fjölda ára deila sögum úr hjónabandinu. Hvernig er það að eyða meirihluta ævinnar saman? Er hægt að elska sömu manneskjuna allt sitt líf?
Íslenskir heimildarþættir í leikstjórn Péturs Fjeldsted Einarssonar. Fjallað er um velsældarhagkerfið þar sem áhersla er lögð á framfarir og þróun út frá heilsu fólks og jarðar. Framleiðsla: Elín Hirst, Pétur Fjeldsted Einarsson og embætti landlæknis.
Ævintýri Tulipop er skemmtileg teiknimyndaþáttaröð um litríkan vinahóp sem býr á töfraeyjunni Tulipop.
Í þáttaröðinni er fylgst með vinunum Fredda, sveppa-systkinunum Búa og Gló, Maddý og ekki má gleyma Herra Barra sem er elstur og vitrastur allra á Tulipop. Þau eru öll afar ólík bæði hvað útlit og skapgerð varðar. Á Tulipop búa sterkar kvenpersónur og staðalímyndir fyrirfinnast ekki. Enginn er fullkominn, öllum verður einhvern tíma á í messunni en það sem mestu máli skiptir er kærleikurinn og vináttan. Í hverjum þætti lenda aðalpersónurnar í spennandi ævintýrum og eignast nýja vini.
Ævintýri Tulipop sækir innblástur sinn í íslenska náttúru, sem leikur stórt hlutverk í þáttaröðinni. Virðing fyrir náttúrunni er í fyrirrúmi og markmiðið er að miðla jákvæðum skilaboðum og gleði til barna á öllum aldri.
Maddý ákveður að halda sundlaugarpartý og er harðákveðin í því að allt í partýinu skuli vera bleikt, þar með talin laugin í garðinum hennar. Gló kemur henni til aðstoðar og býr til bleika baðbombu fyrir laugina. Maddý er hæstánægð með útkomuna þar til í ljós kemur að baðbomban hefur ekki aðeins litað laugina hennar bleika...heldur alla Tulipop eyjuna!
Þriðja þáttaröðin um hina vinsælu Blæju og Hælbein fjölskylduna. Daglegt líf fjölskyldunnar gengur sinn vanagang, en hins vegar er enginn dagur eins þegar Blæja og Bára eiga í hlut.
Í þessari þáttaröð skoðar fólk með þroskahömlun málefni líðandi stundar með sínum augum og spyr þeirra spurninga sem því eru hugleiknar. Þættir frá 2013. Dagskrárgerð: Elín Sveinsdóttir.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Bresk glæpaþáttaröð frá 2025 byggð á sænskum metsölubókum eftir Erik Axl Sund. Röð dularfullra morða á ungum mönnum í Bristol leiðir saman rannsóknarlögreglukonuna Jeanette Kilburn og sálfræðinginn Sophiu Craven. Rannsókn málsins dregur þær á hættulegar slóðir ofbeldis og morða. Aðalhlutverk: Eve Myles, Katherine Kelly og Clara Rugaard. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
Finnsk heimildarþáttaröð þar sem rannsóknarblaðamaðurinn Riku Rantala rannsakar örlög ungra manna sem hurfu um borð í ferju milli Svíþjóðar og Finnlands. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Heimildarmynd frá 2017 um bandarísku útvarpsstöðina WLIR sem fór gegn straumnum og kynnti nýbylgjutónlist fyrir Bandaríkjamönnum snemma á níunda áratugnum. Leikstjóri: Ellen Goldfarb.